Ungur maður hafði valið fallegan stað í Laguna Beach í Kaliforníu til þess að biðja kærustu sinnar. Stundin átti hins vegar eftir að verða ógleymanleg fyrir allt aðrar sakir því að miðaldra kona spjó kynþáttahatri yfir parið og hefur myndband af atvikinu farið í mikla dreifingu á samfélagsmiðlum.
Dagblaðið Los Angeles Times greinir frá þessu.
Ungur maður að nafni Emmanuel Banuelos hugðist biðja kærustu sinnar, Hayley Lugos, á fallegum stað í almenningsgarði í Laguna Beach í Kaliforníu síðastliðinn föstudag. Hann hafði hóað í fimm manna mariachi hljómsveit og skreytt staðinn með blómum og kertum og ráðið ljósmyndara.
Dónaleg kona með hund
En þar sem Emmanuel var að leiða Hayley að staðnum þar sem hann hugðist biðja hennar kom aðvífandi miðaldra kona með hund og í vondu skapi. Fór hún að skipta sér af og sagði að fólkið hefði engan rétt til að halda þessa athöfn þarna.
„Garðurinn er fyrir íbúana hérna til að njóta,“ sagði hún og sagðist ætla að hringja á lögregluna sem myndi koma og stöðva þetta. Þegar mariachi hljómsveitin byrjaði að spila ærðist hún.
„Þetta er ekki Mexíkó heldur, móðurserðlar, farið aftur til Mexíkó,“ hrópaði hún og strunsaði í burtu. Lögreglan kom hins vegar aldrei.
Fordæma hegðun konunnar
Myndbandið af atvikinu hefur farið í mikla drefingu og hafa til að mynda nærri 11 milljón manns séð það á Instagram. Þar á meðal starfsfólk sveitarfélagsins sem fordæmdu hegðun konunnar.
„Almenningsgarðar og strendur Laguna Beach standa öllum opnar og eru gjarnan vettvangur fyrir hátíðahöld og myndatökur í tilefni af tímamótum,“ sagði talsmaður sveitarfélagsins. Í sumum tilfellum gæti þurft leyfi en ekki var tilgreint hvort að þetta atvik væri slíkt.
Mjög sárt
Emmanuel sagðist hafa verið mjög sár yfir því að konan hefði sett svartan blett á þennan dag.
„Nú á dögum er þetta ekki eitthvað sem maður vill heyra,“ sagði hann. „Ég á mjög djúpar mexíkóskar rætur, þannig að það var mjög sárt að heyra þetta.“
Þau hefðu samt notið dagsins. En eftir bónorðið og myndatökuna var haldið heim þar sem Emmanuel var búinn að skipuleggja veislu.