Fréttir

Íhugar málsókn gegn Félagsbústöðum vegna veggjalúsar – „Ég get ekki lengur dvalið á heimili mínu“

Mynd
Félagsbústaðir, Mjódd. Mynd: DV/KSJ

Kona sem leigir hjá Félagsbústöðum íhugar málsókn gegn fyrirtækinu í kjölfar þess að veggjalús fannst í íbúð hennar í ónefndu fjölbýlishúsi í eigu Félagsbústaða. Sendi hún bráðatilkynningu um málið til fyrirtækisins í lok ágústmánaðar þar sem hún óskaði eftir milliflutningi eða tímabundnu húsnæði á meðan íbúð hennar yrði gerð búsetuhæf á ný, auk útlagðs kostnaðar við heimsókn meindýraeyðis sem konan þurfti að kalla út sjálf, tjóns vegna persónulegra muna hennar og húsgagna sem hefur þurft að farga vegna óværunnar. Félagsbústaðir hafa í svari sínu til konunnar hafnað óskum hennar. 

Félagsbústaðir eru fyrirtæki að fullu í eigu Reykjavíkurborgar, óhagnaðardrifið hlutafélag sem hefur það hlutverk að tryggja framboð á félagslegu leiguhúsnæði í Reykjavík fyrir fólk sem á erfitt með að afla sér húsnæðis á almennum markaði. Félagsbústaðir þjóna Reykjavíkurborg með starfsemi sinni en Velferðarsvið úthlutar húsnæðinu í samræmi við reglur borgarinnar þar um. Félagsbústaðir annast hins vegar rekstur húsnæðisins og leigusamninginn. 

Fannst í nálægri íbúð meira en mánuði áður

„Veggjalús er nú staðfest komin inn á heimili mitt. Ástandið er orðið þannig að ég get ekki lengur dvalið á mínu eigin heimili og ég hef engan annan stað til að búa á á meðan brugðist er við vandanum. Ég fer því fram á að Félagsbústaðir útvegi mér tímabundið húsnæði/millitímaíbúð eins fljótt og auðið er á meðan íbúðin mín er meðhöndluð og þar til staðfest hefur verið að öruggt sé fyrir mig að flytja aftur inn,“ segir kona í tilkynningu sinni til Félagsbústaða. 

Hún bendir á að fyrirtækinu hafi verið tilkynnt um veggjalús í íbúðinni fyrir neðan hana og að meindýraeyðir hafi verið sendur í þá íbúð. 

„Þrátt fyrir að Félagsbústaðir hafi þannig haft vitneskju um veggjalús í íbúð beint fyrir neðan mig fékk ég enga tilkynningu eða viðvörun um stöðuna og engar fyrirbyggjandi aðgerðir voru framkvæmdar í minni íbúð,“ segir ennfremur í erindi konunnar.

Telur hún að þegar Félagsbústaðir fengu vitneskju um veggjalús í húsinu hefði átt að bregðast strax við með fyrirbyggjandi aðgerðum í nálægum íbúðum. Meta hefði þurft hættu á dreifingu og gera viðeigandi ráðstafanir áður en vandamálið næði að breiðast frekar út. Einnig hefði átt að upplýsa íbúa í nærliggjandi íbúðum um stöðuna svo þeir gætu fylgst með ummerkjum um veggjalús og gripið til viðeigandi ráðstafana. Konan segir einnig: 

„Ég fékk enga viðvörun, enginn kom til að skoða íbúðina mína og engar fyrirbyggjandi aðgerðir voru framkvæmdar á mínu heimili þrátt fyrir að veggjalús hefði greinst í íbúðinni fyrir neðan mig.

Núna er veggjalús staðfest komin inn á mitt heimili.

Það sem mér finnst einnig sérstaklega óásættanlegt er að ég þurfti sjálf að hafa samband við og greiða fyrir meindýraeyði til þess eins að koma heim til mín og staðfesta að um veggjalús væri að ræða.

Ég hef því þegar þurft að leggja út kostnað vegna vandamáls sem Félagsbústaðir höfðu vitneskju um í húsinu fyrir meira en mánuði síðan.“

Hafna kröfum konunnar

Ellefu dögum eftir að konan sendi tilkynningu sína til Félagsbústaða sendu Félagsbústaðir stutta tilkynningu til íbúa hússins. Þar er greint frá því að veggjalús hafi fundist í húsinu og íbúar sem verða varir við möguleg ummerki hennar eru beðnir um að hafa samband „án tafar“. 

Bráðatilkynningu leigjandans til Félagsbústaða var síðan svarað rúmlega tveimur vikum síðar, eða þann 14. september. Í svarinu er öllum óskum konunnar hafnað, sem og ábyrgð Félagsbústaða á því að veggjalús hafi komið upp í íbúð hennar. Orðrétt segir: 

„Félagsbústaðir taka mál sem varða veggjalús í leiguhúsnæði félagsins alvarlega og hefur gripið til aðgerða sem félagið telur nauðsynlegar. Það felur hins vegar ekki í sér viðurkenningu á bótaskyldu félagsins vegna kostnaðar eða tjóns sem þú telur þig hafa orðið fyrir.

 Í erindi þínu er einkum byggt á því að Félagsbústaðir hafi haft vitneskju um veggjalús í annarri íbúð í húsinu og að félaginu hafi af þeim sökum borið að vara þig við og grípa til fyrirbyggjandi aðgerða í íbúð þinni.

 Það eitt að veggjalús hafi greinst í íbúð í húsinu leiðir ekki til þess að Félagsbústaðir beri skaðabótaábyrgð vegna þess að veggjalús greinist síðar í annarri íbúð. Til þess að slík bótaskylda geti stofnast þurfa almenn skilyrði skaðabótaábyrgðar að vera uppfyllt, þ.m.t. um saknæma háttsemi eða vanrækslu, tjón og orsakatengsl.

 Að mati Félagsbústaða liggur ekki fyrir grundvöllur til að ætla að þessi skilyrði séu uppfyllt. Ekki hefur verið sýnt fram á að veggjalús í íbúð þinni verði rakin til háttsemi eða vanrækslu Félagsbústaða eða að það tjón og sá kostnaður sem vísað er til í erindinu sé afleiðing af atvikum sem Félagsbústaðir bera skaðabótaábyrgð á. Þá verður ekki fullyrt hvaðan veggjalúsin barst í íbúð þína.

 Félagsbústaðir hafna því bótaskyldu vegna þess kostnaðar og tjóns sem lýst er í erindi þínu. Það tekur m.a. til kröfu um endurgreiðslu kostnaðar vegna komu meindýraeyðis og ætlaðs tjóns á rúmi, húsgögnum, fatnaði eða öðrum persónulegum munum.

 Félagsbústaðir viðurkenna jafnframt ekki skyldu til að útvega eða greiða fyrir tímabundið húsnæði á meðan unnið er að útrýmingu veggjalúsar. Komi til þess að nauðsynlegar aðgerðir vegna veggjalúsar valdi skerðingu á afnotum íbúðarinnar verður eftir atvikum tekin sérstök afstaða til áhrifa þess á leigugreiðslur meðan sú skerðing varir.

 Félagsbústaðir munu eftir sem áður sjá til þess að gripið verði til þeirra aðgerða vegna veggjalúsar í íbúðinni sem nauðsynlegar teljast. Umfang frekari skoðana eða aðgerða í húsinu verður metið eftir því sem tilefni er til.

Með vísan til framangreinds er bótaskyldu Félagsbústaða vegna þess tjóns og útlagða kostnaðar sem lýst er í erindinu hafnað.“

Íbúi í hinni íbúðinni fann veggjalús aftur

Konunni þykja þetta vera kaldar kveðjur frá Félagsbústöðum. Fyrirtækið skýli sér þar bak við lagabókstaf en taki ekki tillit til þess að leigjendur hjá Félagsbústöðum séu oft fólk í erfiðri félagslegri og fjárhagslegri stöðu og hafi ekki burði til að bregðast við áföllum af þessu tagi, finna sér tímabundið húsnæði eða standa straum af þeim kostnaði sem hér hefur hlotist af vegna óværunnar, t.d. vegna þjónustu meindýraeyðis og förgunar á húsgögnum. 

Samkvæmt gögnum sem DV hefur undir höndum kveðst leigjandi íbúðar þar sem veggjalús fannst mörgum vikum áður en veggjalús fannst í umræddri íbúð hafa fundið stóra, fullorðna veggjalús í íbúðinni, eftir að hún flutti inni í hana aftur, að afloknum aðgerðum Félagsbústaða til að útrýma óværunni úr íbúðinni. Segir hún að henni hafi verið tjáð í símtali að henni væri óhætt að flytja aftur inn í íbúðina. Er hún bað um að fá það staðfest skriflega fékk hún hins vegar aðeins staðfest að búið hefði verið að eitra – ekki að veggjalúsin væri upprætt eða að henni væri óhætt að flytja heim. Síðan fann hún fullorðna veggjalús í íbúðinni eftir aðgerðina.

Staðfest er núna smit í þremur íbúðum í húsinu, samkvæmt heimildum DV. 

Íhugar málsókn

DV hafði samband við lögmann leigjandans, Þorgils Þorgilsson, og spurðist fyrir um stöðu málsins. Þorgils segir í skriflegu svari við fyrirspurn DV: 

„Staðan á málinu er sú að Félagsbústaðir hafa sent eitt bréf til umbjóðanda míns, hún hefur ekki fengið viðbrögð að neinu öðru leyti. Hún þurfti sjálf að leita sér aðstoðar meindýraeyðis þrátt fyrir loforð FB um að gera slíkt fyrir hana. Þá hefur FB ekki skoðað íbúðina neitt. Umbjóðandi minn hefur vitneskju um að enn séu veggjalýs í húsinu þrátt fyrir að fyrsta smit kom upp í lok júlí hjá nágranna hennar. FB lét engan vita af því smiti og gerði engar ráðstafanir til að lýsnar færu ekki í aðrað íbúðir.“

 Spurður út í hvernig málið blasi við honum frá lagalegum sjónarhóli segir Þorgils: 

„Verið er að skoða lagalegan grundvöll málsins, en umbjóðandi minn telur að með vanrækslu sinni um að gera ekki ráðstafanir, né láta íbúa vita,  eftir að veggjalýs fundust í lok júlí hafi FB orðið skaðabótaskyldir vegna þess tjóns sem umbjóðandi minn hefur orðið fyrir, sem hleypur á hundruðum þúsunda. Vel hefði verið hægt að koma í veg fyrir það tjón.“ 

Aðspurður segir Þorgils að til skoðunar sé að stefna Félagsbústöðum vegna málsins. 

Þurfa að gæta að persónuvernd íbúa

DV leitaði til framkvæmdastjóra Félagsbústaða, Þórdísar Lóu Þórhallsdóttur, og svaraði hún skriflegri fyrirspurn um málið. Í svari hennar kemur meðal annars fram að hvað varðar upplýsingagjöf til nágranna um veggjalús þurfi að virða persónuvernd þess leigjanda sem í hlut á og því sé aðeins greint frá því sem nágrannar þurfa að vita til að bregðast rétt við. Sömuleiðis af persónuverndarástæðum sagðist Þórdís Lóa ekki geta tjáð sig um einstök mál við DV en í almennu svari hennar um það verklag sem stuðst er við þegar tilkynningar berast um veggjalús segir:

„Við tökum tilkynningar um veggjalús mjög alvarlega. Þegar okkur berst tilkynning um grun um veggjalús í íbúð í okkar eigu er haft samband við leigjandann og meindýraeyði, sem metur umfang vandans og ráðleggur um viðeigandi meðferð. Málið er jafnframt skráð í miðlægan grunn Félagsbústaða og verkbeiðnir vegna þess settar í forgang. 

Við tilkynningu um veggjalús er kannað hvort áður hafi komið upp tilvik í sömu íbúð, nærliggjandi íbúðum eða sameign. Meindýraeyðir skoðar íbúðina og skilar mati á umfangi vandans og nauðsynlegri meðferð. Leigjandi fær leiðbeiningar um undirbúning, þrif og meðferð fatnaðar og húsgagna. Lögð er áhersla á að munum sé ekki fargað nema fagaðili ráðleggi það og að kannað sé hvort unnt sé að meðhöndla þá.
 
 
Meindýraeyðir metur einnig hvort hætta sé á útbreiðslu. Ef þörf er á eru nærliggjandi íbúðir og sameign skoðaðar og/eða meðhöndlaðar. Við upplýsingagjöf til nágranna þarf að virða persónuvernd þess leigjanda sem í hlut á, og því er þar aðeins greint frá því sem nágrannar þurfa að vita til að bregðast rétt við.
 

Ef mat meindýraeyðis leiðir í ljós að leigjandi þurfi tímabundið að víkja úr íbúðinni er það metið í samræmi við aðstæður hverju sinni.

 Tjón á persónulegum munum fellur almennt undir innbústryggingu og við hvetjum leigjendur til að kanna rétt sinn samkvæmt þeirri tryggingu. Hvernig kostnaður vegna meðhöndlunar skiptist ræðst af aðstæðum hverju sinni.“
 

Stangast þessi lýsing nokkuð á við feril þess máls sem hér hefur verið rakið. Er DV hafði samband við lögmann konunnar, föstudaginn 2. október, höfðu Félagsbústaðir enn ekki skoðað íbúð konunnar né sent þangað meindýraeyði, en eins og áður segir tilkynnti konan um staðfest smit þann 30. ágúst. Rétt er þó að endurtaka að framkvæmdastjóranum er óheimilt að tjá sig um einstök mál.