Umboðsmaður Alþingis hefur lokið meðferð sinni á kvörtun sem snýr að Íslandspósti og úrskurði úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála. Snerist kvörtunin um að notuðum farsímum sem sendir voru frá Íslandi, með pósti, var fargað í Danmörku. Fram kemur einnig í bréfi umboðsmanns að kvartandinn hafi tekið upp símtöl sín við starfsfólk Íslandspósts án vitundar þess.
Segir í bréfi umboðsmanns að kvörtunin hafi snúið að úrskurði úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála frá því maí 2026. Með úrskurðinum hafi verið staðfest ákvörðun Byggðastofnunar frá janúar 2026 um að aðhafast ekki frekar vegna kvörtunar yfir starfsháttum Íslandspósts, í tengslum við pakkasendingu frá Íslandi til ónefnds lands. Fyrir liggi að sendingin hafi verið stöðvuð við eftirlit PostNord í Danmörku, þegar endursenda átti hana til Íslands, og fjórum af fimm farsímum sem í henni voru fargað.
Hvorki umrædd ákvörðun Byggðastofnunar né úrskurður úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála hafa verið birt á vef stofnunarinnar.
PostNord er póstþjónustufélag í sameiginlegri eigu danska og sænska ríkisins.
Hljóðritun
Í bréfi umboðsmanns Alþingis segir enn fremur að samkvæmt kvörtuninni, sem beint hafi verið til embættisins, hafi verið fullyrt að starfsmenn Íslandspósts hafi veitt kvartandanum rangar upplýsingar um að heimilt væri að senda fjóra farsíma í sömu sendingu, sem innihéldu eina lithíumrafhlöðu hver. Rangar og villandi upplýsingar Íslandspósts hafi leitt til þess að verðmætum hafi verið fargað af PostNord. Telji kvartandi að úrskurðarnefndin hafi einnig skýrt reglur um hámark lithíums í hverri sendingu með röngum hætti. Þá séu í kvörtuninni gerðar ýmsar athugasemdir við meðferð úrskurðarnefndarinnar, Byggðastofnunar og Íslandspósts á málinu.
Segist umboðsmaður hafa kynnt sér úrskurð úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála og gögn sem kvartandinn hafi lagt fram í málinu, þar á meðal upptökur af samskiptum hans við starfsmenn Íslandspósts sem virðist hafa verið gerðar án vitneskju þeirra. Í úrskurðinum sé meðal annars rakið að í sendingunni hafi verið fimm notaðir farsímar og að rafhlaða eins þeirra hafi ekki verið inni í símanum sem brjóti í bága við reglur um sendingu lithíumbattería.
Að auki hafi sendingin ekki verið merkt með réttum hætti þar sem ekki hefði verið upplýst um að hún innihéldi hættulegan varning. Hafi úrskurðarnefndin talið ekki verða séð að fyrrgreind tilhögun sendingarinnar yrði rakin til rangrar upplýsingagjafar Íslandspósts. Hefði nefndin komist að þeirri niðurstöðu að málsmeðferð Byggðastofnunar og Íslandspósts hefði verið í samræmi við lög en heimildir Íslandspósts, samkvæmt lögum um póstþjónustu, séu takmarkaðar utan lögsögu Íslands.
Í ljósi alls þessa telur umboðsmaður ekki tilefni til athugasemda við þá niðurstöðu nefndarinnar að staðfesta ákvörðun Byggðastofnunar um að aðhafast ekki frekar vegna kvörtunarinnar í garð Íslandspósts.
Framhaldið
Bætir umboðsmaður því við að eftir að kvörtunin hafði verið lögð fram hafi kvartandinn upplýst að frekari gögn hefðu komið fram í tengslum við málið, nánar tiltekið viðbrögð PostNord við umkvörtunum sem hann hafi beint þangað vegna málsins. Þar sem ekki verði annað ráðið en að um sé að ræða nýjar upplýsingar sem ekki hafi legið fyrir við afgreiðslu úrskurðarnefndarinnar á málinu sé rétt að bera þær undir nefndina og eftir atvikum Byggðastofnun, sem þannig fái tækifæri til að leggja mat á hvort og þá hvaða þýðingu þær hafi fyrir niðurstöðu hennar, áður en umboðsmaður taki sérstaka afstöðu til þessa atriðis.
Segist umboðsmaður þó taka fram að með þessari ábendingu hafi embættið enga afstöðu tekið til þess hvaða meðferð og afgreiðslu slíkt erindi ætti að hljóta, kjósi kvartandinn að fylgja málinu frekar eftir.
Umboðsmaður telur ekki tilefni til að taka málið til frekari skoðunar og lætur því meðferð sinni á þessari kvörtun, vegna póstsendingar á notuðum farsímum milli landa, lokið.