Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari og einn af helstu forvígismönnum körfuboltafélagsins Aþenu í Efra-Breiðholti, vandar Bjarna Guðjónssyni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og formanni íþrótta- og útilífsráðs ekki kveðjurnar. Er Brynjar Karl vægast sagt ósáttur við að ráðið, á fundi sínum fyrir helgi, samþykkti að segja upp samningi við Aþenu um rekstur íþróttahússins í Austurbergi. Gagnrýnir hann einnig harðlega að félagið hafi heldur ekki fengið samning um rekstur kennslu- og fundarýmis. Segir Brynjar Karl vart annað blasa við en að meirihlutinn í borgarstjórn vilji eins og síðasti meirihluti úthýsa Aþenu og losna við félagið og það sé vart annað í stöðunni en að leggja starfið niður.
Á fundi íþrótta- og útlilífs ráðs á föstudag var lögð fram tillaga um að menningar- og íþróttasviði Reykjavíkurborgar yrði falið að taka að nýju yfir rekstur íþróttahússins í Austurbergi. Til samræmis yrði menningar- og íþróttasviði falið að segja upp ósamræmanlegum skuldbindingum. Þá félli ennfremur úr gildi ákvörðun menningar- og íþróttaráðs, frá því í júní 2025, um að ganga frá nýjum samningi milli Reykjavíkurborgar og Aþenu um rekstur hússins. Ljóst væri að sá samningur hafi aldrei komist til framkvæmda. Í tengslum við þessar breytingar skyldi lögð áhersla á að tryggja að Aþena fengi nægan fjölda æfingatíma og aðstöðu til að starfrækja og efla sína starfsemi á sviði íþrótta. Breytt fyrirkomulag á rekstri mannvirkisins ætti því ekki að hafa neikvæð áhrif á íþróttastarfsemi félagsins eða iðkendur þess.
Uppsögn
Samningurinn frá í júní 2025 átti sömuleiðis að fela í sér að borgin tæki rekstur íþróttahússins yfir af Aþenu með áherslu á að samnýta aðstöðuna eins og kostur væri samhliða því sem Aþena fengi nægan fjölda tíma og aðstöðu til að efla sína starfsemi.
Brynjar Karl hafði hins vegar kallað eftir því að gerður yrði rekstrarsamningur um starfsemi félagsins eins og við önnur íþróttafélög í Reykjavík og að í honum myndi ekki síst felast afnot af kjallaranum í Austurbergi fyrir kennslu- og fundarými. Á fundi íþrótta- og útilífsráðs um miðjan mánuðinn var tillaga Miðflokksins um gerð rekstrarsamnings við Aþenu felld. Til grundvallar þeirri ákvörðun var minnisblað frá Steinþóri Einarssyni sviðsstjóra menningar- og íþróttasviðs. Í minnisblaðinu kom m.a. fram að unnið væri að þarfagreiningu vegna Aþenu og vísað til þess að kjallarinn í Austurbergi yrði ónothæfur næstu tvö ár vegna umfangsmikilla framkvæmda.
Sjá einnig: Aþena fékk stuðning úr óvæntri átt en bíður enn eftir samningi
Í greinargerð með tillögunni um uppsögn samningsins við Aþenu um rekstur íþróttahússins í Austurbergi, sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar lögðu fram á fundi íþrótta- og útilífsráðs á föstudag, kom fram að yfirtaka borgarinnar á rekstri hússins gæti haft í för með sér fjárhagslegt hagræði og bætta nýtingu. Aþena hafi sóst eftir áframhaldandi samningi um að reka húsið. Fullt aðgengi eins félags að þessu stóra mannvirki gæti hins vegar haft útilokandi áhrif fyrir aðkomu annarra félaga og samtaka að húsnæðinu. Því væri farsælla að borgin tæki á nýjan leik yfir rekstur íþróttahússins að Austurbergi.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar samþykktu þessa tillögu sína og fulltrúi Samfylkingarinnar gerði það einnig. Fulltrúi Vinstrisins sat hjá en fulltrúi Miðflokksins greiddi atkvæði á móti.
Furða
Lárus Blöndal Sigurðsson er fulltrúi Miðflokksins í íþrótta- og útilífsráði og hann furðaði sig í bókun á þessari ákvörðun meirihlutans sem eins og áður segir Samfylkingin studdi.
Hann sagði ákvörðunina í hrópandi ósamræmi við þá stefnu sem Reykjavíkurborg hafi haft að leiðarljósi undanfarin ár, að semja við íþróttafélög borgarinnar um rekstur íþróttamannvirkja. Félögin hafi rekið mannvirkin með mun hagkvæmari hætti en Reykjavíkurborg hafi gert. Lárus veltir því einnig upp eins og Brynjar Karl hefur oft gert í langvarandi deilum við brogaryfirvöld um aðstöðu og framtíð Aþenu hvort um óvild í garð félagsins sé að ræða:
„Meirihlutinn segist hafa það að markmiði að efla íþróttastarf barna- og ungmenna í Efra Breiðholti í góðri samvinnu við þau félög sem þar eru með starfsemi. Þessi ákvörðun er ekki dæmi um það. Það er ástæða til þess að hafa miklar áhyggjur af starfsemi Aþenu í Efra Breiðholti í kjölfar þessarar ákvörðunar. Engu er líkar en að þessi ákvörðun sé tekin í hreinni óvild gangvart þeirri starfsemi sem Aþena sinnir í dag.“
Bjarni
Stefán Pálsson er fulltrúi Vinstrisins í íþrótta- og útilífsráði og lýsti í bókun yfir vonbirgðum með hvernig samskipti borgaryfirvalda og Aþenu hafi verið. Félagið hefði náð góðum árangri en starfsmenn borgarinnar hefðu unnið af heilindum í málinu og mestu máli skipti að tryggja öflugt, fjölbreytt og aðgengilegt íþróttalíf í Efra-Breiðholti á komandi misserum, með aðkomu sem flestra aðila.
Brynjar Karl ritar harðorða færslu um þessa uppsögn borgarinnar, á samningnum um íþróttahúsið og synjun á beiðni um aðstöðu fyrir kennslu- og fundi, á Facebook og lætur einnig fylgja með henni myndband. Beinir hann orðum sínum einna helst að Bjarna Guðjónssyni formanni íþrótta- og útilífsráðs:
„Samskiptin við Bjarna Guðjónsson hafa verið ömurleg. Hann, eins og embættismennirnir, virðist ekki hafa áhuga á að tala við fólk sem nær árangri. Það virðist einfaldlega sem saga og staða hverfisins - og börnin sem hér búa - skipti hann ekki nægilega miklu máli.“
„Þess vegna eru allir vinir mínir í Sjálfstæðisflokknum brjálaðir út í Bjarna G. Þeir trúðu því að Bjarni myndi breyta hlutunum. Við höfum komið því skýrt til skila að sjálfboðaliðar og fjárfestar verkefnisins geta ekki haldið áfram án rekstrarsamnings. Rekstrarsamningurinn er eina raunverulega tryggingin fyrir því að borgin sé hætt við plön sín um að bola okkur út, eins og fyrri meirihluti lagði sig fram um. Og samt er þetta niðurstaðan hjá Bjarna. Við erum því komin á þann stað, að öllu óbreyttu, að starfið verður lagt niður.“
Börnin
Brynjar Karl skorar á Bjarna að mæta sér fyrir opnum tjöldum og fara yfir málefni Aþenu. Ítrekar Brynjar Karl þann árangur sem félagið hafi náð við að efla þátttöku stúlkna í Efra-Breiðholti í íþróttum. Hann segir að félagið einoki ekki íþróttahúsið í Austurbergi og þar séu tímar til reiðu fyrir fleiri félög.
Minnir hann enn fremur á starfsemin snúist um miklu meira en bara íþróttaiðkun:
„Læknar og sjúkraþjálfarar koma hingað og gefa vinnuna sína. Krakkarnir fá karakterþjálfun, stuðning, félagsskap, kröfur, ábyrgð og fólk sem mætir fyrir þau. Þetta er raunveruleiki sem fólk í forréttindastöðu á oft erfitt með að skilja. Það skilur ekki Það skilur ekki fátæktargildruna sem við erum að vinna gegn á hverjum einasta degi.“
Segir Brynjar Karl Bjarna hafa heimsótt Aþenu í hálftíma fyrir síðustu kosningar og hann viti ekkert um hvað börnunum í félaginu sé fyrir bestu:
„Já, já. Leyfum bara KR-ingnum Bjarna G., sem þurfti ekki einu sinni að fara í gegnum prófkjör og vantaði greinilega þægilega innivinnu að taka, að taka ákvarðanir fyrir börnin í Breiðholti.“
Boðar Brynjar Karl til fundar klukkan 20 annað kvöld í Austurbergi um framtíð Aþenu og hvetur foreldra iðkenda, stuðningsfólk, íbúa og kjörna fulltrúa til að mæta
Að minnsta kosti einn borgarfulltrúi hefur boðað komu sína en það er Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir úr Miðflokknum en borgarfulltrúar þess flokks hafa stutt við bakið á Aþenu, sem vekur athygli í ljósi þess að uppistaðan í hópi iðkenda félagsins eru innflytjendur og börn innflytjenda.