Fréttir

Þetta vill Viðskiptaráð selja, sameina eða leggja niður

Mynd
Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Samsett mynd.

Viðskiptaráð hefur lagt fram 46 tillögur að hagræðingu í ríkisrekstri sem eiga að skila ríkissjóði 110 milljörðum króna í tekjur, þar af strax 19 milljörðum á næsta ári. Fram kemur í umsögn Viðskiptaráðs við fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, sem birt er á vef Viðskiptaráðs, að ráðið fagni því að loksins eigi að stöðva hallarekstur ríkissjóðs en á sama er það gagnrýnt að hækka eigi skatta upp á 34 millljarða á banka, ökutæki, baðlón og fleira. 

Sjá einnig: Hallalaust fjárlagafrumvarp

Viðskiptaráð er hagsmunasamtök sem hafa það að markmiði að bæta rekstrarumhverfi fyrirtækja á Íslandi, aðilar að ráðinu er stór hópur fyrirtækja sem flestir kannast við og fyrirtæki í eigu almennings, þar á meðal Landsvirkjun, Landsbankinn og Orkuveitan. 

Ýmsar tillögur eru lagðar fram varðandi starfsmannahald ríkisins, til dæmis að afnema styttingu vinnuvikunnar sem á að bæta hag ríkissjóðs um 19,4 milljarða og að uppsagnarvernd, veikindaréttur og orlof verði jafnað við almennan vinnumarkað, það á að skila um 14,6 milljörðum. 

Meðal skammtímatillagna er að leggja niður Umboðsmann skuldara, Jafnréttisstofu, Mannréttindastofnun og Fjölmiðlanefnd. 

Meðal langtímatillagna er að selja allan eignarhlut ríkisins í Landsbankanum, Isavia, Happdrætti Háskóla Íslands, Íslandspóst og Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar. Einnig verði seldir minni hlutir í Hörpu, Landsvirkjun og Endurvinnslunni. 

Þá eigi að afnema alfarið endurgreiðslur til kvikmyndagerðar og gjaldfrjálsar skólamáltíðir, hætta stuðningi við einkarekna fjölmiðla, hætta framlögum til stjórnmálaflokka og leggja af bæði ráðstöfunarfé ráðherra og heiðurslaun listamanna. Einnig eru lagðar fram ýmsar tillögur um sameiningar stofnana, þar á meðal að sameina Þjóðskrá og Hagstofuna, og Fjarskiptastofu, Neytendastofu og Samkeppniseftirlitið.

Vilja falla frá launavísitölutengingu örorkubóta

Viðskiptaráð gagnrýnir einnig launavísitölutengingu bóta almannatrygginga sem geri það að verkum að bæturnar hækka um 7,3% árið 2027 í stað 4%, sem þýðir 9 milljarða króna. 

„Jafnframt hafa nýlegar breytingar á kerfinu dregið úr hvata til atvinnuþátttöku. Hækkun frítekjumarka, samhliða upptöku hlutaörorkubóta, hefur gert það að verkum að pör með börn og einstæðir foreldrar þurfa að vera með mánaðarlaun yfir meðallaunum til að það borgi sig ekki að vera á hlutaörorkubótum. Svo að örorkubótakerfið þjóni þeim sem hafa skerta starfsgetu sem best er nauðsynlegt að tryggja að það dragi ekki úr hvata til atvinnuþátttöku,“ segir í umsögn Viðskiptaráðs. 

„Viðskiptaráð leggur til að fallið verði frá launavísitölutengingunni og breytingin sem gerð var á kerfinu árið 2025 verði rýnd með tilliti til hvata til atvinnuþátttöku. Þörf er á að endurmeta frítekjumörkin, til þess að tryggja að fjárhagslegir hvatar séu rétt stilltir og jafnframt að styrkja hvata til endurmats og endurhæfingar innan kerfisins.“

Hér má lesa umsögn Viðskiptaráðs

Uppfært: 9:55
Viðskiptaráð hlekkjaði óvart í rangt pdf-skjal sem upprunaleg útgáfa fréttar byggði á. Þar mátti finna tillögu um að leggja niður Ríkisútvarpið, en sú tillaga rataði ekki í lokaútgáfu skjalsins. Fréttin hefur verið uppfærð í samræmi við þetta.