Stefán Þór Arnarsson hefur tekið til starfa hjá Fastus sem sviðsstjóri og staðgengill forstjóra. Stefán hóf störf hjá Fastus þann 1. september sl. og mun leiða Fastus Heilsu sem er heilbrigðissvið Fastus.
Stefán hefur yfir 20 ára reynslu úr lyfja- og heilbrigðisgeiranum m.a. frá Actavis, Medis og Coripharma. Síðustu fimm ár starfaði Stefán hjá Coripharma, meðal annars við viðskiptaþróun og seinast sem framkvæmdastjóri vörustjórnunar. Þar kom hann að fjölbreyttum verkefnum á sviði fyrirtækjasölu, vörustjórnunar og nýmarkaðssetningar lyfja viðskiptavina Coripharma.
„Það sem heillar mig sérstaklega við Fastus er tækifærið til að vinna með vörur og lausnir sem geta beinlínis bætt líf fólks eða jafnvel bjargað mannslífum. Mér finnst mjög spennandi að taka þátt í þeirri þróun og leiða áfram uppbyggingu Fastus Heilsu," segir Stefán.
Í nýju starfi mun hann leiða heilbrigðissvið Fastus og bera ábyrgð á stefnumótun, þróun og rekstri sviðsins. Stefán er með BSc-gráðu í vörustjórnun og hefur í gegnum feril sinn öðlast víðtæka reynslu af heilbrigðis- og lyfjageiranum, alþjóðlegum birgðakeðjum, viðskiptaþróun og stjórnun.