Þingkosningar fara fram í Serbíu eftir 3 vikur. Háværar kvartanir hafa heyrst frá Serbum búsettum erlendis um að stjórnvöld í landinu séu vísvitandi að gera þeim erfitt fyrir við að neyta atkvæðisréttar sína. Þar á meðal eru Serbar búsettir á Íslandi en þeir segjast hafa fundið húsnæði hér á landi sem uppfylli allar kröfur en samt vilji stjórnvöld ekki samþykkja að opna kjörstað hérlendis. Fram hefur komið í fréttum að fultrúar í Landskjörstjórn Serbíu hafa bent á að kjörstaðir verði ekki opnaðir í fjölda landa þar sem fjöldi Serba býr og að sums staðar þar sem það verði gert verði fólk að kjósa um miðja nótt.
Áhugi Serba sem búa utan heimalandsins á því að taka þátt í kosningunum er mikill. Kosningarnar áttu að fara fram á næsta ári en var flýtt og fara fram 25. október næstkomandi. Aleksandar Vucic forseti boðaði til kosninganna og sagði síðan af sér, en það var fyrir viku. Hann er hins vegar í framboði sem forsætisráðherraefni kosningabandalags sem flokkur hans fer fyrir en flokkurinn hefur verið í forsæti ríkisstjórnar Serbíu síðan 2012. Vucic hefur verið valdamesti maður Serbíu í fjölda ára. Hann var kjörinn forseti árið 2017 en þar áður var hann varnarmálaráðherra og síðan forsætisráðherra. Forsetaembættið í Serbíu hefur einhver völd en þó takmörkuð en vegna stöðu sinnar og áhrifavalds er Vucic sagður hafa verið í raun mun valdameiri en forseti Serbíu eigi, samkvæmt stjórnskipan landsins, að vera. Þar spilaði einnig inn í að hann var fram til 2023 leiðtogi flokks síns.
Boðað var til kosninganna í kjölfar töluverðra mótmæla sem verið hafa í landinu. Hefur ekki síst spillingu verið mótmælt en kveikjan að mótmælunum var þegar hluti af þaki lestarstöðvar hrundi, í nóvember 2024, í borginni Novi Sad. Létust 16 manns af völdum hrunsins. Orsakir hrunsins munu vera enn til rannsóknar en spillingu við úthlutun framkvæmda fyrir hið opinbera hefur verið kennt um, af óánægðum borgurum. Hafa mótmælin síðan þá beinst einnig að spillingu almennt og öðrum þáttum eins og til að mynda hömlum á fjölmiðlafrelsi.
Hreyfing námsmanna hefur verið framarlega í flokki í mótmælunum og hefur hún boðið fram í kosningunum og hefur í könnunum mælst annaðhvort stærsti eða næststærsti flokkurinn. Framboð námsmanna og kosningabandalagið undir forystu Vucic bítast um sigurinn en samkvæmt könnunum eru þessi tvö framboð að mælast með samtals um 75-90 prósent fylgi samanlagt.
Erlendis
Í bréfi sem DV barst nú í kvöld frá Serbum sem búsettir eru á Íslandi segir að hópur þeirra hafi fundið húsnæði hérlendis sem uppfylli allar öryggiskröfur. Vilja þeir einnig meina að hérlendis séu nægilega margir kjósendur á kjörskrá, fleiri en lágmarkið sem sé 100, til að hægt sé að opna kjörstað en samt hafi serbnesk yfirvöld ekki samþykkt það. Segjast þeir hafa lagt mikla vinnu í að vekja athygli landa sinna á Íslandi á rétti þeirra til að kjósa í kosningunum.
Minnt er í bréfinu á að sendiráð Serbíu gagnvart Íslandi sé í Osló sem geri Serbum á Íslandi erfiðara fyrir að nýta kosningarétt sinn í kosningunum eftir 3 vikur. Þetta hafi verið sérstaklega rætt meðal Serba á Íslandi.
Ekki einstakt
Serbar á Íslandi eru hins vegar langt í frá einir meðal Serba sem búa utan heimalandsins um að kvarta yfir því að þeim sé gert erfitt fyrir að nýta kosningaréttinn.
Hefur fjölmiðilinn N1, sem flytur fréttir af málefnum í ýmsum löndum í Mið- og austur-Evrópu, þar á meðal Serbíu, fjallað mikið um þetta.
Ræddi miðillinn fyrr í dag við doktorsnema í stjórnmálafræði, Nikola Traživuk, sem segir líklegt að það komi kosningabandalagi flokks Vucic vel ef kjörsókn aukist ekki frá síðustu kosningum. Traživuk var spurður sérstaklega út í mikinn áhuga Serba sem búa erlendis á að taka þátt í kosningunum. Segir hann að víða um heim hafa venjulegir Serbar haft frumkvæði að því að finna aðstöðu til að nýta sem kjörstaði.
Hann segir hins vegar að serbneska utanríkisráðuneytið hafi dregið lappirnar við að opna kjörstaði í fjölda landa þar sem farið hafi verið fram á það. Skýra þurfi þetta betur þótt vissulega hafi ráðuneytið ekki óendanleg úrræði til að opna kjörstaði víða um heim. Ljóst sé hins vegar að um 110.000 Serbar búsettir erlendis hafi skráð sig á kjörskrá fyrir kosningarnar. Aldrei hafi svo margir Serbar í útlöndum skráð sig á kjörskrána og það sé ljóst að þeir hafi kosningarétt en það líti þannig út að stjórnvöld séu að reyna að hamla því að þeir nýti þennan rétt sinn. Þessu er einmitt haldið fram í bréfi Serba á Íslandi til DV.
Annarlegt
Þann 1. október sendi serbneska utanríkisráðuneytið frá sér fréttatilkynningu þar sem fullyrt var að framboð námsmanna væri að halda fram röngum upplýsingum um stöðu serbneskra kjósenda erlendis. Sagði ráðuneytið það bersýnilega gert í annarlegum tilgangi.
Í tilkynningunni segir að serbneskir ríkisborgarar erlendis sem vilji kjósa verði að vera með skráð heimilisfang í Serbíu og vera skráðir á kjörskrá eða óska eftir skráningu með tilkynningu til næsta serbneska sendiráðs eða sendiskrifstofu um að þeir ætli að kjósa erlendis. Sú tilkynning sé svo send til viðkomandi sveitarfélags í Serbíu sem ákvarði hvort viðkomandi fái að kjósa. Segir í tilkynningunni að umsóknarfrestur myndi renna út á miðnætti 3. október, að staðartíma í Belgrad.
Segir ráðuneytið að það sé á hendi landskjörstjórnar að samþykkja opnun kjörstaða erlendis en sveitarstjórnaryfirvöld geti ákveðið nákvæmar staðsetningar. Segir að lokum að utanríkisþjónusta Serbíu sé að vinna á fullum afköstum við að meðhöndla umsóknir frá Serbum erlendis um skráningar á kjörskrá. Er framboð námsmanna einnig sagt vera hávært en það þýði ekki að framboðið fari með rétt mál.
Viljinn
Þessi tilkynning var eins og áður segir send út 1. október en framboð námsmanna sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem segir að Landskjörstjórn Serbíu hafi samþykkt skammarlegar tillögur utanríkisráðneytisins um kjörstaði erlendis, sem ætlað sé að hindra það að Serbar í öðrum löndum fái að kjósa. Fjöldi kjörstaða erlendis sem nýttir hafi verið í fyrri kosningum verði ekki opnaðir. Serbneskir borgarar í sumum löndum þurfi að kjósa um miðja nótt að staðartíma, þar á meðal í Norður-Ameríku og Ástralíu. Segist framboðið ætli að nýta allar löglegar leiðir sem mögulegar séu til að fá þessu breytt og segir að stjórnvöld geti ekki hunsað þá 110.000 Serba sem búi erlendis og ætli sér að kjósa.
Fram kom í dag í umfjöllun N1 að engir kjörstaðir yrðu opnaðir í 12 löndum þar sem búi samtals 10.000 Serbar en mikill áhugi hafi verið meðal þessa hóps á að fá að greiða atkvæði. Meðal þessara landa sé Rúmenía, Búlgaría, Tyrkland, Slóvakía, Sameinuðu arabísku furstadæmin og Katar.
Annað dæmi sem er nefnt til sögunnar er að í nágrannaríkinu Svartfjallalandi verði ekki opnaður kjörstaður í borginni Herceg Novi þótt þar sé til staðar ræðismannsskrifstofa Serbíu.
Fram kom að 110.000 Serbar erlendis hafi fengið umsóknir sínar um skráningu á kjörskrá samþykktar en sá fjöldi geti hartnær tvöfaldast því samkvæmt gögnum frá utanríkisráðuneytinu séu 81.000 umsóknir enn í vinnslu.
Hindrun
Fram kom sömuleiðis að sumir sem eiga sæti erlendis í landskjörstjórn hafi andmælt tillögu utanríkisráðuneytisins um kjörstaði erlendis og segja hana stefna kosningarétti fjölda Serba erlendis í hættu. Gagnrýndu þessi fulltrúar einnig að skort hafi á skýringar á því hvernig listi yfir kjörstaði erlendis hafi verið tekinn saman. Það hafi skort einnig mjög á gögn og tölur um dreifingu serbneskra kjósenda um heimsbyggðina. Þessi hópur var þó í minnihluta í kjörstjórninni en hann hefur krafist þess að listinn yfir kjörstaði erlendis verði endurskoðaður.
Þegar kemur að tímasetningum þá segir þessi hópur að það sé nýmæli að kjörstaðir erlendis verði að vera opnir á nákvæmlega sama tíma og kjörstaðir í Serbíu. Það geri það að verkum að sumstaðar verði kjörstaðir opnaðir að nóttu til. Þetta sé bersýnilega gert til að hindra kosningaþátttöku Serba í þessum löndum.
Segir einnig í umfjöllun N1 að þessi ósátti minnihluti kjörstjórnar telji stjórnvöld vera að kúga serbneska borgara erlendis sem vilji ekki annað en að fá nota lýðræðislegan rétt sinn til að kjósa.
Talsmaður utanríkisráðuneytisins neitaði þessu alfarið. Hann sagði að þegar ráðuneytið mótaði tillögu um kjörstaði erlendis hafi fleira en aðeins fjöldi kjósenda á hverjum stað verið tekið með í reikninginn, þar á meðal húsnæði, öryggismál, hvort fólk væri til staðar til að manna kjörstaðin o.fl.
Dusan Dincic, einn hinna ósáttu meðlima kjörstjórnar bendir hins vegar á að víða hafi almennir borgarar séð um það sjálfir að finna húsnæði en ráðuneytið hafi ekki nýtt þessa hjálp. Flestum öðrum afsökunum ráðuneytisins vísaði hann á bug. Ráðuneytið hafi þar að auki ranglega haldið því fram að kjörstjórn ákveði kjörstaði erlendis. Hún ákveði ekki um tiltekna staði heldur samþykki aðeins tillögu ráðuneytisins. Aðspurður um hvers vegna flestir í hinum ósátta minnihluta hafi samt samþykkt tillöguna svarar hann að hefði það ekki verið gert hefðu miklar líkur verið á því að Serbar erlendis hefðu hvergi getað kosið. Hann sagði hins vegar að lokum mikilvægt að sem flestir Serbar nýttu kosningaréttinn.
Það virðist því ætla að verða miklum erfiðleikum háð fyrir Serba búsetta á Íslandi og víða annars staðar erlendis að kjósa í þingkosningunum, sem verða eins og áður segir 25. október næstkomandi.