Fréttir

Réttarhöld framundan yfir ökumanni lyftarans í Lækjargötu – Ákærður fyrir manndráp af gáleysi

Mynd

Ökumaður skotbómulyftara sem kom við sögu í banaslysi í Lækjargötu miðvikudaginn 13. september árið 2023 er ákærður fyrir manndráp af gáleysi og umferðarlagabrot. Aðalmeðferð í málinu verður við Héraðsdóm Reykjaness þann 8. október næstkomandi.

Í ákæru, sem Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gefur út, er maðurinn sagður hafa ekið skotbómulyftara af tegundinni Manitou MT 625H, óhæfur til að stjórna henni vegna áhrifa slævandi lyfja, en í blóði hans mældist díazepam 83 ng/ml og nordíazepam 160 ng/ml. Hann er sagður hafa ekið um Lækjargötu við Vonarstræti með gaffla lyftarans í 70 cm hæð, án nægilegrar athygli, en útsýni til hægri hafi verið að miklu leyti byrgt vegna staðsetningar skotbómumunnar. Lyftarinn lenti í árekstri við Volkswagen Caddy-sendibifreið sem ekið var af stað á gatnamótum til vinstri frá Vonarstræti inn á Lækjargötu. Gafflar lyftarans stungust inn í sendibílinn með þeim afleiðingum að ökumaður hans lést samstundis af áverkum sem hann hlaut við áreksturinn. 

Í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa um slysið, sem greint frá var í byrjun árs 2025, segir að ökumaður sendibílsins hafi verið óhæfur til aksturs vegna áhrifa örvandi fíkniefnis. Aðrar orsakir slyssins, samkvæmt niðurstöðu nefndarinnar, eru þær að ökumaður sendibifreiðarinnar virti ekki biðskyldu og ók í veg fyrir vinnuvélina, en biðskylda er fyrir umferð af Vonarstræti inn á Lækjargötu. Aðrar orsakir slyssins, samkvæmt niðurstöðu nefndarinnar, eru þær að ökumaður sendibifreiðarinnar virti ekki biðskyldu og ók í veg fyrir vinnuvélina, en biðskylda er fyrir umferð af Vonarstræti inn á Lækjargötu.

Krafist miskabóta og útfararkostnaðar

Fyrr hönd aðstandanda hins látna er krafist miskabóta að fjárhæð sjö milljónir króna og útfararkostnaðar að fjárhæð 558.400 krónur.