Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, gagnrýnir háa skattlagningu á áfengi hér á landi og spyr hvaða rök séu fyrir því að skattarnir þurfi að vera margfalt hærri en í nágrannalöndunum.
Ólafur gerði þetta að umtalsefni í aðsendri grein á vef Vísis í gær þar sem hann ber skattlagningu hér á landi saman við önnur lönd.
„Ísland viðheldur Evrópumeti sínu í skattlagningu á áfenga drykki, miðað við fjárlagafrumvarp ársins og tengd frumvörp. Raunar finnast ekki dæmi á Vesturlöndum um ríkari skattagleði stjórnvalda þegar kemur að áfengum drykkjum. Skoðum nokkur dæmi,” segir Ólafur.
Hluti af góðri máltíð
Ólafur tekur fyrst fyrir léttvín í grein sinni og segir að meirihluti þeirra 30 Evrópuríkja, sem Félag atvinnurekenda skoðaði, leggi engan sértækan áfengisskatt á léttvín heldur aðeins virðisaukaskatt.
„Það er í takt við það viðhorf í þessum ríkjum að léttvínsflaska sé fyrst og fremst hluti af góðri máltíð. Það eru einkum norðlægari Evrópuríki, sem leggja sérstakan áfengisskatt á léttvín,“ segir Ólafur en samkvæmt mynd sem birtist með greininni sker Ísland sig rækilega úr þegar kemur að skattlagningu á léttvín.
Í samanburðinum er miðað við 75 sentilítra léttvínsflösku með 12 prósenta vínanda sem kostar fimm evrur fyrir skatta. Þar sem virðisaukaskattur á áfengi er lægri á Íslandi en í flestum öðrum Evrópuríkjum er bæði tekið tillit til hans og áfengisskattsins til að gera samanburðinn sem sanngjarnastan. Aðrar álögur, á borð við skilagjöld á umbúðir, eru ekki teknar með.
„Samanlagður áfengisskattur og virðisaukaskattur á Íslandi slagar hátt í tvöfalt verð flöskunnar fyrir skatt. Áfengisskatturinn einn á Íslandi er talsvert hærri en samanlagður áfengisskattur og virðisaukaskattur í Noregi, sem er næstskattaglaðasta Evrópuríkið þegar kemur að áfengissköttum. Munurinn á áfengisskattinum á Íslandi og í öðrum Evrópuríkjum, sem á annað borð leggja hann á léttvín, er frá því að vera tvöfaldur upp í að telja í tugum,“ segir Ólafur í grein sinni.
Fimmfalt hærri en í Danmörku
Hann snýr sér næst að sterku áfengi og bendir á að öll Evrópuríki telji ástæðu til að leggja áfengisskatt á sterkt áfengi.
Þegar sterkt áfengi er borið saman er miðað við 70 sentilítra flösku af vodka, með 40 prósenta áfengisinnihaldi, sem kostar tíu evrur í innkaupum. Ólafur bendir á að það sé hátt innkaupsverð og skekki í raun samanburðinn Íslandi í hag, þar sem áfengisskatturinn miðist við magn áfengis en ekki innkaupsverð vörunnar.
Þrátt fyrir það sker Ísland sig verulega úr. Samanlagðir skattar á flöskuna nema 4,5-földu innkaupsverði hennar. Samkvæmt samanburðinum eru skattarnir um 40 prósent hærri en í Noregi, tvöfalt hærri en í Finnlandi og nær fimmfalt hærri en í Danmörku. Sé miðað við Ítalíu og Spán er skattlagningin á Íslandi um áttföld.
Ísland og Noregur í sérflokki
Hann snýr sér svo að bjórnum og miðast samanburðurinn við 33 cl bjórflösku með 5% áfengisinnihjaldi og kostar eina evru fyrir skatta.
Þegar kemur að bjór er Noregur eina ríkið sem er fyrir ofan Ísland í samanburðinum. Samanlagður áfengis- og virðisaukaskattur þar er einu evrusenti hærri en hér á landi. Ísland og Noregur skera sig jafnframt nokkuð frá Finnlandi, sem er í þriðja sæti og eina ríkið til viðbótar þar sem skattlagningin er hærri en innkaupsverð vörunnar.
Ólafur bendir þó á að áfengisskatturinn sjálfur sé mun hærri á Íslandi en í Noregi. Samanlögð skattlagning á bjór er jafnframt tvöfalt hærri hér á landi en í Svíþjóð og Írlandi og munurinn eykst enn frekar gagnvart þeim ríkjum sem neðar eru á listanum.
Segir stjórnvöld þurfa að svara
Ólafur spyr í grein sinni: „Hver eru rökin fyrir miklu hærri sköttum á Íslandi?“
Hann segir rannsóknir styðja að hátt verð og skattlagning geti dregið úr áfengisneyslu og þannig þjónað lýðheilsumarkmiðum. Hins vegar hafi stjórnvöld ekki rökstutt hvers vegna skattlagning þurfi að vera margfalt hærri hér en í nágrannalöndunum til að ná þeim markmiðum.
Hann bendir jafnframt á að samkvæmt evrópskum verðsamanburði hafi verð á áfengum drykkjum á Íslandi árið 2024 verið um 185 prósent yfir meðaltali ESB og það hæsta í Evrópu. Háir áfengisskattar bitni meðal annars á veitingageiranum og hafi neikvæð áhrif á samkeppnisstöðu ferðaþjónustunnar og innlenda áfengisframleiðslu.
Skattarnir verði frystir
Í grein sinni bendir Ólafur á að enn eigi að hækka áfengisskattana samkvæmt fjárlagabandormi ársins, eða um 5,2%.
„Ætla má að sú hækkun verði þó takmörkuð við 2,5% miðað við yfirlýsingar forsætisráðherra. Félag atvinnurekenda hefur lagt til að krónutala áfengisskatta verði fryst næstu árin, þannig að þeir þokist smátt og smátt nær einhverju sem telja má skynsamlegt í samanburði við nágrannalöndin. Það væri sanngjarnt, bæði gagnvart neytendum og íslenzku atvinnulífi.“