Töluvert var um innbrot, ekki síst í bíla, og þjófnaði í Reykjavík frá klukkan 5 í morgun til klukkan 17 í dag.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu sem barst fjölmiðlum óvenju seint að þessu sinni.
Tilkynnt var um að ráðist hafi verið á leigubílstjóra í Hlíðunum. Málið er í rannsókn. Tvær tilkynningar bárust um þjófnað úr verslun í Hlíðunum. Gerendur voru í báðum tilfellum á staðnum er lögreglu bar að garði. Þess er ekki getið hvort um sömu verslun var að ræða í báðum málum.
Tilkynnt var um innbrot í bifreið í Hlíðunum. Málið er í rannsókn.
Tilkynnt var sömuleiðis um innbrot í bifreið í Múlunum. Það mál er líka í rannsókn.
Tilkynnt var síðan um innbrot í verslun í miðborginni. Gerandi var handtekinn skömmu síðar. Málið er til rannsóknar.
Tvær tilkynningar bárust um innbrot í bifreiðar í Breiðholti. Bæði mál eru í rannsókn.
Loks má geta þess að erlendur aðili var handtekinn í Árbæ fyrir ólögmæta dvöl á landinu. Hann var fluttur á lögreglustöð og málið er til rannsóknar.
Síðan var tilkynnt um þjófnað úr verslun í Grafarvogi. Gerandi var á staðnum er lögreglu bar að garði en hvort hann var handtekinn er ekki tekið fram.