Fréttir

Margrét: „Ég held að ekki einu sinni Carl Baudenbacher gæti bjargað okkur”

Mynd
Margrét er gestur Ólafs Stephensen í Kaffikróknum.

Margrét Einarsdóttir, prófessor í lögfræði við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í Evrópurétti, telur engan vafa leika á því að Ísland myndi tapa máli fyrir EFTA-dómstólnum vegna innleiðingar bókunar 35 við EES-samninginn.

Hún gengur svo langt að segja að ekki einu sinni Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, gæti bjargað málstað Íslands.

Margrét ræddi málið við Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda, í hlaðvarpsþættinum Kaffikróknum. Fjallað er um viðtalið á vef Félags atvinnurekenda en í spjallinu var til umræðu ágreiningur um innleiðingu bókunar 35 og mögulegt dómsmál Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, gegn Íslandi.

Telur niðurstöðuna skýra

Bókun 35 fjallar um hvernig á að leysa úr því þegar lög sem gera EES-reglur að íslenskum reglum rekast á við aðrar íslenskar reglur. Þá eiga lögin sem gera EES-reglurnar að íslenskum reglum að gilda.

Margrét segir að sjaldan hafi reynt á bókunina hér á landi þar sem íslensk lög séu alla jafna í samræmi við EES-samninginn. Dæmi séu þó um dómsmál þar sem reynt hafi á hvort íslensk lög sem byggja á EES-reglum gangi framar öðrum íslenskum lögum.

Að hennar mati hefur staðan leitt til þess að einstaklingar og fyrirtæki geti ekki verið fullviss um að réttindi sem þau njóta samkvæmt EES-samningnum haldi fyrir íslenskum dómstólum.

Margrét vísar meðal annars til dóms Hæstaréttar í svokölluðu fæðingarorlofsmáli fyrir tveimur árum. Þar hafi Hæstiréttur bent á að bókun 35 hefði ekki verið réttilega innleidd í íslenskan rétt. Þá séu fyrirliggjandi skýr fordæmi frá EFTA-dómstólnum.

Af þeim sökum telur Margrét engan raunverulegan vafa á því hver niðurstaðan yrði færi málið fyrir EFTA-dómstólinn.

„Hvaða málsvörn væri eftir?“

Ólafur vék í samtalinu að ummælum stjórnmálamanna sem hafa kallað eftir því að málið fari fyrir dómstólinn og Ísland haldi þar uppi fullum vörnum.

Guðlaugur Þór Þórðarson hefur meðal annars talað fyrir slíkri leið en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur lagt til að Carl Baudenbacher verði fenginn til að annast varnir Íslands.

Ólafur benti hins vegar á að íslensk stjórnvöld hefðu þegar viðurkennt í samskiptum við ESA að lagfæra þyrfti innleiðingu bókunarinnar. Auk þess hefði Hæstiréttur komist að þeirri niðurstöðu að hún væri ekki réttilega innleidd.

„Hvaða málsvörn væri eftir ef menn ætluðu að fara til EFTA-dómstólsins og halda uppi fullum vörnum, eins og menn segja núna?“ spurði Ólafur.

Svar Margrétar var afdráttarlaust.

„Ég bara veit það ekki. Ég held að ekki einu sinni Carl Baudenbacher gæti bjargað okkur. Stundum eru hlutirnir bara ekki skoðun heldur staðreyndir.“

Margrét sagðist jafnframt hafa vonast til þess eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna að íslenskir stjórnmálamenn gætu sameinast um mikilvægi þess að standa vörð um EES-samninginn.

„Ég var svo barnaleg að ég hélt, eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna, að íslenskir stjórnmálamenn gætu sammælst um að nú þyrftum við að standa vörð um EES-samninginn.“