Fréttir

Lögregla tjáir sig ekki um handtöku athafnamannsins – „Sjáum til þegar líður á daginn“

Mynd
Lögreglustöðin við Hverfisgötu. Mynd: Maggi gnúsari.

„Við höfum bara ekki  gefið eitt né neitt út um þetta mál heilt yfir,“ segir Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, er DV spurði hvort krafist yrði gæsluvarðhalds yfir íslenskum athafnamanni sem samkvæmt frétt RÚV var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í gærkvöld í tengslum við rannsókn á umfangsmiklu máli sem varðar fíkniefnalagabrot og peningaþvætti. 

DV spurði hvort ekki væri tímabært að veita einhverjar upplýsingar um stöðu málsins nú þegar Ríkísútvarpið hefur greint frá handtökunni. „Við höfum ekki rætt málið við Ríkisútvarpið,“ svaraði Elín Agnes.

Hún segir ekki tímabært að veita frekari upplýsingar um málið í bili. Hún vill heldur ekki tjá sig um stöðu rannsóknarinnar í heild. „Sjáum til þegar líður á daginn,“ segir hún og útilokar ekki tilkynningu um málið þegar líður á daginn. „Ég veit ekki, við eigum eftir að taka stöðuna um það.“

Umræddur athafnamaður er sagður meðal annars tengjast rekstri þekkts samlokustaðar auk reksturs fasteignafélaga og verktakafyrirtækja. Hann er á sextugsaldri og var handtekinn við komu hingað til lands frá Portúgal. Lögregla réðst í miklar aðgerðir í þágu rannsóknar málsins þann 22. september og vildi þá handtaka manninn en hann var þá staddur í Portúgal þar sem hann dvelst oft. 

Sautján voru handteknir í aðgerðunum 22. september, þar af voru sex úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Meðal hinn handteknu voru tveir menn sem starfa við bílasölu, þar af stýrir annar sölusviði hjá BL. Allir hafa verið látnir lausir. Sem fyrr segir liggur ekki fyrir hvort krafist verður gæsluvarðhalds yfir athafnamanninum sem handtekinn var í gærkvöld. Lögregla hefur einn sólarhring eftir handtökuna til að leggja fram slíka kröfu.