Fréttir

Tveir létust í slysinu við Háreksstaðakvísl

Mynd
Tveir ferðamenn létust í slysinu.

Tveir erlendir ferðamenn á sjötugsaldri létust í umferðarslysi í gær á þjóðvegi 1 við Háreksstaðakvísl. 

Þetta kemur fram í tilkynningu Lögreglunnar á Austurlandi.

„Þá voru tveir fluttir alvarlega slasaðir á sjúkrahús með sjúkraflugi til Reykjavíkur, erlendir ferðamenn einnig,“ segir í tilkynningunni.  „Aðrir voru í kjölfar slyssins færðir til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Austurlands á Egilsstöðum. Þeir voru útskrifaðir samdægurs. Meiðsli talin minniháttar.“

Rannsókn á tildrögum slyssins er í höndum lögreglunnar á Austurlandi og Rannsóknarnefndar samgönguslysa.