Ásdís Björg Gestsdóttir, kennari og móðir drengs í 10. bekk grunnskóla, segir nýtt námsmat ekki gagnast við að veita foreldrum eða nemendum leiðsögn. Gamla kerfið hefði verið betra.
„Ég á barn í 10. bekk. Ég er líka kennari og hef fylgst með breytingum á námsmati frá báðum sjónarhornum. Námsmat þarf að byggjast á skýrum forsendum og veita nemendum og foreldrum gagnlega leiðsögn,“ segir Ásdís í aðsendri grein á Vísi. „Sem foreldri þarf ég að skilja upplýsingarnar frá skólanum til að geta stutt barnið mitt, en eftir fyrsta námsmat skólaársins sit ég uppi með fleiri spurningar en svör.“
Botna ekkert í námsmatinu
Sonur hennar fékk fyrir helgina námsmat úr fyrstu lotu skólaársins. Ásdís botnaði ekkert í því.
„Þar birtust tölur sem ég skildi ekki. Voru þær hlutfall réttra svara á prófi eða mat á hæfni samkvæmt nýjum kvarða? Hverju hafði hann náð tökum á og hvað þurfti hann að æfa betur?“ segir hún. „ Hann var engu nær en ég og sagðist vilja fá hæfniviðmiðin aftur svo hann gæti séð hvað hann gæti bætt og hvar hann þyrfti að leggja meira á sig. Þarna er nemandi á lokaári grunnskólans sem vill taka ábyrgð á eigin námi, en finnur ekki í niðurstöðunum leiðsögn sem hann skilur.“
Segir hún að fyrir ári síðan hafi þau haft betri yfirsýn. Námsmatið sýndi stöðu gagnvart einstökum hæfniviðmiðum. Hvað hafi þurft að þjálfa, hverju hann hefði þegar náð og í hverju hann væri að standa sig sérstaklega vel í. Hægt var að aðstoða hann við að bæta sig og hann gat séð það sjálfur hvar veikleikarnir og styrkleikarnir lágu.
Vísar hún í viðtal við Þorstein Mar Gunnlaugsson kennara á RÚV þar sem kom fram að orðið „upplýsingamengun“ hafi verið notað á kynningarfundum fyrir kennara um hæfniviðmið sem birtust foreldrum. Verið væri að draga úr þeirri sýn til að auðvelda foreldrum að átta sig á stöðu barnsins.
„Bæði sem kennari og foreldri er ég sammála því að hæfniviðmiðin geti verið of mörg og að bæta megi framsetningu þeirra. En þau hjálpuðu okkur að styðja barnið okkar í námi. Ef hvorki nemandinn né foreldrar hans skilja niðurstöðurnar hefur einföldunin ekki náð tilgangi sínum,“ segir Ásdís.
Of mikill hraði
Búið sé að boða kynningu á námsmatinu í nóvember en það sé of seint. Þá verða þrír mánuðir liðnir af skólaárinu og lítill tími til að bregðast við.
„Þetta er ekki gagnrýni á skólann eða kennarana. Þau eru sjálf að læra á breytt fyrirkomulag og innleiða það samhliða daglegu skólastarfi. Sú staða veldur mér áhyggjum,“ segir Ásdís. Einnig taki hún undir með öðrum kennara, Ragnheiði Stephensen, sem vildi halda kerfinu óbreyttu í vetur og nýta tímann til undirbúnings. Hraði innleiðingarinnar sé allt of mikill og ábyrgðin liggi hjá ráðherra og ráðuneyti.
„Mér hefði þótt eðlilegt að nýta þetta skólaár til undirbúnings og innleiða breytingarnar á því næsta. Þess í stað líður mér eins og sonur minn og jafnaldrar hans séu tilraunahópur á meðan enn er verið að skýra framkvæmdina. Sú tilfinning er ekki góð. Við getum ekki beðið fram eftir vetri eftir að skilja hvað þurfi að bæta og hvernig,“ segir Ásdís að lokum. „Ég kalla eftir því að stjórnvöld endurskoði hraða innleiðingarinnar og tryggi nemendum skýrar og gagnlegar upplýsingar um eigið nám. Það má breyta framsetningu námsmats og einkunnakvarða, en leiðsögnin verður að skila sér. Sonur minn vill vita hvað hann getur bætt og hvar hann getur lagt meira á sig. Hann þarf svör við því núna. Hann er í 10. bekk. Hann fær ekki þetta skólaár aftur þegar kerfið er orðið skýrara.“