Mímir Kristjánsson, hinn hálfíslenski þingmaður, mætti í þjóðbúningi á norska stórþingið. Sökuðu hægri menn hann um að hafa mætt í hrekkjavökubúning.
„Hatar Uten Filter norska menningu?“ spyr Mímir í færslu á samfélagsmiðlum og vísar til umræðu á hægrimiðlinum Uten Filter þar sem klæðaburður hans var gagnrýndur.
Á föstudag mætti Mímir, sem á íslenskan föður en norska móður og situr fyrir vinstriflokkinn Rødt, til þings í þjóðbúningi og hlaut gagnrýni fyrir.
„Ætla mætti að norskir hægrimenn væru hrifnir af þjóðbúningum, miðað við hversu heitt þeir elska „norska menningu“. En nei. Hægri-tröllin á netinu þekkja ekki einu sinni þjóðbúning frá Vestur-Noregi,“ segir Mímir. „Þau halda að ég sé í grímubúningi! Eins og á hrekkjavöku!“
Hægri menn en ekki múslimar séu ógn við norska menningu
Bendir Mímir á að móðir hans hafi búið til þjóðbúninginn handa honum. Búningurinn eigi rætur úr firðinum sem hann er alinn upp í, Suldal. Húfan kallist pinnhúfa.
„Þau vita ekki rassgat um Noreg og þykjast bara vera þjóðernissinnar,“ segir Mímir harðorður. „Hættið að tala um að múslimar ógni norskri menningu á meðan við erum með þessa gauka í okkar eigin hreiðri – fólk sem hefur ekki hugmynd um hvað þjóðbúningur er, vill leggja ríkisútvarpið NRK niður, innheimta aðgangseyri í kirkjur og heldur að aðeins kýr geti „múað“ á nýnorsku. Kyssið á mér rassinn – og kyssið minn mjög svo norska rass!“