Landsréttur hefur hafnað beiðni Margrétar Friðriksdóttur um áfrýjunarleyfi vegna dóms héraðsdóms þar sem hún var fundin sek um ærumeiðingar í garð Barböru Björnsdóttur héraðsdómara.
Margrét var dæmd til 200 þúsund króna sektargreiðslu og til að greiða málskostnað upp á rúmlega þrjár milljónir króna.
Við meðferð beiðninnar fyrir Landsrétti viku allir dómarar við dóminn sæti vegna tengsla sinna við Símon Sigvaldason landsréttaradómara sem kvaddur var til vitnis við meðferð málsinis í héraðsdómi og Margrét vildi kalla til vitnis á ný eftir að ákveðið var að endurflytja málið fyrir héraðsdómi, þar sem dómur hafði ekki fallið innan löggiltra tímamarka, en það stafaði af veikindum dómarans.
Í stað dómara við Landsrétt fjölluðu þrír varadómarar við dóminn um beiðni Margrétar, þau Halldór Halldórsson, Hjördís Halldórsdóttir og Hrefna Friðriksdóttir. Niðurstaða þeirra er sú að hafna beiðninni, byggt á því að ekki séu líkur til þess að niðurstöðu héraðsdóms verði breytt svo einhverju nemi, ekki verði fallist á að úrslit málsins varði mikilvæga hagsmuni Margrétar og ekki verði séð að dómur í málinu hafi verulegt almennt gildi.
Svo virðist því Margrét sitji upp með hinn mikla málskostnað sem hlaust af rekstri málsins þó að sektin sjálf sem hún var dæmd til að greiða hafi verið lág.
Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður, verjandi Margrétar, segir hana nú skoða réttarstöðu sína en hann vildi ekki tjá sig frekar um málið.
Mögulegir kostir Margrétar í stöðunni eru að skjóta málinu til Mannréttindadómstóls Evrópu eða jafnvel krefjast endurupptöku þess fyrir Endurupptökudómi.