Fréttir

Lögreglan leitar að Halldóri Inga

Mynd
Lögreglan leitar að Halldóri Inga.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af Halldóri Inga Emilssyni,  43 ára. Ekkert hefur spurst til hans í nokkurn tíma.

„Talið er líklegt að Halldór, sem er um 183 cm á  hæð, grannvaxinn og dökkhærður, haldi til á höfuðborgarsvæðinu. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Halldórs eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000 eða í neyðarnúmerið 112,“ segir í tilkynningur lögreglu.