Alvarleg líkamsárás átti sér stað í fermingarferð í Vatnaskógi um síðustu helgi, en þar varð ungur drengur fyrir árás af hálfu annars barns. Frá þessu greinir mbl.is. Hópurinn var í Vatnaskógi á vegum Háteigskirkju. Málið er nú annars vegar á borði lögreglu og hins vegar á borði kirkjunnar en alls tóku 52 börn þátt í ferðinni. Unnið er nú að því að veita börnum og foreldrum stuðning.
Barn varð fyrir líkamsárás í fermingarferð í Vatnaskógi
Mynd
Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki með beinum hætti.
Beinni vakt lokið