Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands hefur svarað fullyrðingum fyrrum samkennara síns Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um að hann hefði þegið laun frá Evrópusambandinu. Bendir Baldur á að í frétt Morgunblaðsins, sem rituð er af Stefáni Einari Stefánssyni, þar sem rætt er við Hannes um þessi meintu laun sé tekið fram að um hafi verið að ræða rannsóknarstyrk úr sjóðum Sambandsins sem sé ekki ætlaður fyrir launagreiðslur. Þar með hafi blaðið leiðrétt ósannindi Hannesar.
Baldur skrifar í færslu á Facebook:
„Morgunblaðið leiðréttir ósannindi HHG. Það skemmtilegasta við frétt Morgunblaðsins um styrk sem Háskóli Íslands fékk í mínu nafni frá rannsókna- og kennslusjóð ESB í gegnum aðild Íslands að EES er að hún leiðréttir skröksögu viðmælanda blaðsins.“
„Í fréttinni er haft eftir HHG: ,,Við þurfum að vita af þessu að þessir menn eru launaðir af Evrópusambandinu“ og áður hafði komið fram ,,eru á launum hjá Evrópusambandinu“.“
„Í fréttinni segir hins vegar ,,Um er að ræða fjárframlag vegna kennslu en ekki beina persónulega launagreiðslu til Baldurs."“
„Svo fór um sjóferð þá.“
Telur Baldur óþarfi að skýra málið frekar í ljósi þess sem áður hefur komið fram:
„Það hafa verið skrifaðar fjöldi góðra greina um þessa frétt Morgunblaðsins á samfélagsmiðlum síðustu tvo sólarhringa. Þær útskýra vel rannsókna- og kennslustyrki fræðimanna.“