Fréttir

Umferðarslys á Breiðholtsbraut

Mynd

Umferðarslys átti sér stað á Breiðholtsbraut skammt frá Norðlingaholti rétt fyrir klukkan eitt. Þetta kemur fram á Vísi en þar segir að slysið hafi átt sér stað við gatnamót inn í Víðidal. Töluverður viðbúnaður er á svæðinu og hefur tímabundið verið lokað fyrir umferð á svæðinu.