Fréttir

Umferðarslys í Norðlingaholti: Sjö fluttir á slysadeild

Mynd
Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Sjö voru flutt á slysadeild í gærkvöld eftir að bíl var ekið á ljósastaur austan við bensínstöð Olís í Norðlingaholti. 

Vísir greinir frá. Ekki liggur fyrir hvort um hafi verið að ræða fólksbíl eða stærri bíl en aðeins einn bíll kom við sögu í slysinu. 

Enginn hlaut alvarlega áverka í slysinu en um var að ræða einn ökumann og sex farþega.