Tvítugur maður var þann 26. ágúst, í Héraðsdómi Reykjavíkur, sakfelldur fyrir urmul afbrota, meðal annars þjófnaði, fíkniefnalagabrot, vopnalagabrot, innbrot, hótanir og brot í nánu sambandi.
Meðal annars var ákærði sakaður um að hafa fimmtudaginn 12. mars á þessu ári, í verslun við Þönglabakka í Reykjavík, haft í vörslu sinni hníf á almannafæri og stolið kjötvörum að verðmæti tæplega 10 þúsund krónur. Þegar öryggisvörður ætlaði að stöðva för hans úr versluninni ógnaði hann honum með hnífi og hótaði að stinga hann. Skömmu síðar kom hann aftur inn í verslunina og hótaði að stinga öryggisvörðinn.
Síðar í sama mánuði, þ.e. aðfaranótt 23. mars, braust hann inn í verslun að Austurmörk í Hveragerði, með því að brjóta gler í hurð, og stal þaðan þremur sígarettupökkum og tveimur Redbull dósum. Skömmu síðar þegar lögregla hafði afskipti af honum, utandyra að Austurmörk, var hann með hníf á sér. Hann braust síðan aftur inn í verslun við Austurmörk sömu nótt og stal dálitlu af vörum.
„Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“
Maðurinn var meðal annars ákærður og sakfelldur fyrir ljót brot í nánu sambandi. Þann 13. febrúar veittist hann með ofbeldi að konu í íbúð í Torfufelli í Reykjavík, ýtti henni og hótaði henni ítrekað líkamsmeiðingum og lífláti. Ummælin voru til þess fallin að vekja konunni ótta um líf sitt, heilbrigði og velferð sína, segir í ákæru. Ummælin voru eftirfarandi:
„Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“
„Ef þú ætlar að láta svona fokking við mig þá veistu það að núna ertu búin að ganga svo langt en þú veist ég er […] en þú munt fá að finna fyrir því ef þú rekur mig út úr
íbúðinni og gerir mig heimilislausan og endarðu kannski með afsagaða haglabyssu upp við fokking hausinn á þér“
„Ég læt kasta molotov sprengju í húsið hjá þér og C, ef þú hættir þessu ekki að þá mun molotov sprengjum rigna yfir hús fjölskyldumeðlima, þetta er allt undir þér komið“
„Ég mun drepa þig“
„Þannig ég get komið hérna og barið þig í klessu“
Játar og bætir ráð sitt
Í dóminum kemur fram að ungi maðurinn hefur játað skýlaust þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Ennfremur voru lögð fram gögn sem sýna að hann hefur sýnt samstarfsvilja í geðrænni meðferð sem hann hefur hlotið. Einnig er rakið í vottorði frá félagsráðgjafa að ákærði hafi skráð sig í nám og sýnt framfarir í tilfinningastjórn með því að nýta bjargráð sem hann hafi og lagt sig fram í samskiptum og lagt sig fram um að forðast ágreining. Hann hafi tekið þátt í þeirri virkni sem boðið er upp á innan fangelsisins, gegnt hlutverki gangaformanns á deildinni sinni, sótt reglulega AA-fundi og hitt meðferðarfulltrúa hjá Fangelsismálastofnun.
Er það samdóma álit fagaðila sem hafa sinnt manninum að hann sé í góðu bataferli og jákvæðar breytingar hafi orðið á viðhorfum hans og hegðun.
Einnig var lagt fram vottorð frá Fangelsinu Hólmsheiði þar sem kemur fram að hann hafi unnið, samhliða dvöl sinni í fangelsinu, að meðferðaráætlun í samráði við sálfræðinga. Ennfremur sé hann kurteis við starfsmenn og aðra.
Niðurstaðan var að maðurinn er dæmdur í 10 mánaða fangelsi en frá þeim tíma dregst gæsluvarðhald sem hann hefur setið í frá 5. apríl.
Hann þarf auk þess að greiða brotaþola, konu sem hann beitti ofbeldi og hótunum, 117 þúsund krónur í miskabætur.