Björn Leví Gunnarsson, fyrrum þingmaður Pírata, sakar Jón Pétur Zimsen, þingmann Sjálfstæðisflokks, um ofbeldi í formi gaslýsingar, en þingmaðurinn hefur kostað til færslu á Facebook þar sem hann líkir þeim sem kusu já í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn við þá sem kusu gegn því að Ísland segði skilið við Dani. Þetta kemur fram á Facebook.
Jón Pétur Zimsen skrifar færslu á Facebook sem hann hefur kostað:
„Trúum á okkur sjálf – Ekki þessa 377.
377 manns kusu gegn sjálfstæði Íslendinga 1944, vildu ekki slíta sambandi við Dani. Aðrir Íslendingar trúðu á samborgara sína og sjálfa sig. Árangur þeirra sem börðust fyrir sjálfstæði þjóðarinnar er hreint út sagt stórkostlegur. Þetta fólk kom okkur úr örbirgð til auðlegðar vegna þess að það trúði á eigin getu, eigin dugnað, eigin elju og eigið hugvit. Nú eru aðrir 377-arar sem vilja skerða fullveldi og sjálfstæði okkar með inngöngu í ESB. 377-ararnir hafa misst trú á getu okkar til að halda áfram á þeirri leið sem fyrri kynslóðir hafa varðað og vilja hörfa í faðm ESB. Uppgjöf er ekki í boði þó að 377-arar hafi kostað inn hvíta handklæðinu. Stöndum í fæturna og segjum Nei á laugardaginn.“
Björn Leví segir að þarna sé Jón Pétur að saka þá sem sögðu já við aðildarviðræðum, ekki aðild heldur viðræðum, um að vera gegn sjálfstæði Íslands frá Danmörku. Vísar Björn til skilgreiningar Merriam Websters á gaslýsingu þar sem fram kemur að um er að ræða sálfræðilega aðferð sem gjarnan er beitt til lengri tíma sem veldur því að þolandi fer að efast um eigin hugsanir, skynjun sína á raunveruleikanum og minningar.
„Með þessu er ég að ásaka JPZ um ofbeldi. Gaslýsing er ofbeldi,“ skrifar Björn og vísar til þess að gaslýsing telst sérstök tegund ofbeldis.
„Nú er tjáningarfrelsið mjög mikilvægt. Fólk á að geta sagt nokkurn veginn hvað sem er, hvar sem er og hvenær sem er. En við vitum öll að það eru takmörk á tjáningarfrelsinu. Það er hægt að misnota tjáningarfrelsið — nota það sem skjól til þess að iðka ofbeldi. Að mínu mati er JPZ að gera það hérna.“
Einn netverji bendir í athugasemd við færslu Björns á ákveðna kaldhæðni sem birtist í ritstjórnargrein spænska fjölmiðilsins El País um þjóðaratkvæðagreiðsluna en þar er bent á að Íslendingar hafi nú, með því að hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið, afsalað sér fullveldi enda þurfi þeir í gegnum EES-samninginn að innleiða mikinn meirihluta af regluverki Evrópusambandsins án þess að fá nokkuð um það að segja. Björn svarar og tekur fram að þetta sé rétt að vissu leyti, í reynd hafi Íslendingar staðfest núverandi fullveldisframsal í gegnum EES-samstarfið.
„Það gleymist hins vegar oft að það fullveldisframsal á við um alla aðra í því samstarfi líka. Þeir aðilar deila með sér því fullveldi, gefa það milli hvors annars og samnýta það.“