Lögregla verst að mestu leyti frétta af rannsókn á banaslysi á Krísuvíkurvegi seint á sunnudagskvöld en meðal þess sem er á borði lögreglu eru viðtöl við vitni. Þrjú ungmenni létust í slysinu en þau voru í bíl sem hafnaði utan vegar. Bílnum var ekið suður Krýsuvíkurveg, nærri Bláfjallavegi, þegar slysið varð.
Ásdís Haraldsdóttir, lögreglufulltrúi á lögreglustöð 2, þar sem málið er til rannsóknar, auk þess að vera á borði rannsóknarnefndar samgönguslysa, segir að um afar viðkvæmt mál sé að ræða. Aðspurð segir hún lögreglu meðvitaða um að efni sem á að tengast slysinu hafi verið í dreifingu á samfélagsmiðlum og hvetur hún fólk til að dreifa ekki slíku efni.
Sp: Gögn hafa verið í dreifingu á samfélagsmiðlum sem eiga að tengjast slysinu. Þar á meðal eru gögn sem eiga að sýna hraðakstur. Þið eruð væntanlega meðvituð um þetta?
Ásdís: Við höfum fengið upplýsingar um að, já, það sé efni í dreifingu.
Sp: Hvetjið þið ekki til þess að fólk sé ekki að dreifa svona efni?
Ásdís: Vissulega, en eins og ég segi, þetta er bara eitthvað sem við erum með í athugun hjá okkur og við þurfum að komast til botns í.
Sp: Gögnin gefa einnig til kynna að það hafi verið fleira fólk á vettvangi slyssins.
Ásdís: Eins og ég segi, ég ætla ekki að fara eitthvað nánar út í þetta. Við erum að rannsaka þetta og þetta er bara ótrúlega viðkvæmt mál fyrir alla.
Sp: Þið eruð þá meðal annars með til rannsóknar gögn af því tagi sem ég vísaði til?
Ásdís: Eins og ég segi, við erum bara mjög meðvituð um allt sem er í gangi.
Sp: Er von á annarri tilkynningu um málið í dag?
Ásdís: Það er svo sem ekkert sem ég held að það þurfi að tilkynna frekar. Við erum að rannsaka málið, við erum að vinna í að ræða frekar við vitni, og annað. Þannig að það er svo sem ekkert meira um það að segja.
Sp: En það hafa verið viðtöl við vitni og verða áframhaldandi?
Ásdís: Það er verið að vinna í því að ræða við vitni.
Sjaldgæft að svo margir láti lífið í einu slysi
Fréttir af slysinu hafa vakið mikinn óhug meðal þjóðarinnar. Á síðustu tíu árum hafa aðeins átt sér stað tvö bílslys þar sem jafn margir hafa látist. Árið 2017 létust pólsk hjón ásamt ungu barni þegar bíll þeirra lenti í sjónum við höfnina á Árskógssandi. Árið 2018 létust þrír ferðamenn, tvær konur og ungt barn, þegar jeppi fór út af brú á Skeiðarársandi.
Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, birti yfirlýsingu á Facebook í gærkvöldi þar sem hún hvatti landsmenn til að sameinast í bæn.