„Sorgardagur í sögu íslenskrar fjölmiðlunar. Það er afar bagalegt fyrir okkur sem þjóð að nú skuli aðeins einn fjölmiðill halda úti sjónvarpsfréttum,“ segir Lára Zulima Ómarsdóttir almannatengill og fyrrum fréttakona. Í morgun var tilkynnt um að Sýn myndi hætta framleiðslu á sjónvarpsfréttum og að síðasti fréttatíminn yrði í kvöld. Þar með lýkur tæplega fjörutíu ára sögu einkarekinna sjónvarpsfrétta á Íslandi. Margir hafa lýst yfir skoðun sinni á þessum tíðindum.
Lára segir að hún vonast til að þetta skref Sýnar verði til að styrkja Vísi.is en hún er hrædd um að þetta muni veikja stöðu fjölmiðla á Íslandi. „Þetta er mjög bagaleg og slæm þróun. Fjölmiðlar eru mikilvægir þótt sumir láti eins og þeir skipti ekki máli. Allar rannsóknir sýna að þar sem fjölmiðlar eru sterkir er lýðræðið virkara. Það er bara þannig, sama hvað hver segir. Þess vegna veikist lýðræðið þegar fjölmiðlar veikjast. Ráðherra ætti strax að fá einhvern inn í ráðuneytið sem þekkir til fjölmiðlunar og mikilvægi blaðamennsku til að ráðast í gagngerar endurbætur á styrkjakerfinu til að tryggja að hér sé fjölbreytt flóra blaðamanna og fjölmiðla, lýðræðinu til heilla. Það virðist nefnilega ríkja einhvert skilningsleysi á áhrifum þess að fjölmiðlar veikist með hverju ári.“
Skúbbaði RÚV hvað eftir annað
Sigríður Hagalín Björnsdóttir fréttamaður á RÚV segir þetta hræðilegar fréttir:
„Óskiljanlegt að þessu skuli vera leyft að gerast. Sjónvarpsfréttir eru dýrar og mannaflafrekar, en þær eru ein besta og skilvirkasta leiðin til að halda samfélaginu upplýstu og koma nauðsynlegum upplýsingum á framfæri við almenning. Stöðin stóð RÚV algerlega á sporði, skúbbaði okkur hvað eftir annað og reyndist oft fljótari, skarpari og ósvífnari en við. Það er lífsspursmál fyrir lýðræðið í þessu landi að stjórnvöld, almenningur - áskrifendur, og ekki síst fyrirtæki - bæði eigendur og auglýsendur - átti sig á ábyrgð sinni á því að fjármagna vandaða og faglega fréttamiðla. Annars erum við ofurseld ruslinu sem er dælt yfir okkur á samfélagsmiðlum. Þá getum við gleymt öllu tali um lýðræðisfögnuð, fullveldi Íslands, tunguna okkar og menninguna.“
Útvarpskempan Sigurður G. Tómasson segir þetta áfall fyrir fjölmiðlun á Íslandi. Margir taka í svipaðan streng, þar á meðal gagnrýnandinn Jónas Sen og fyrrum fréttamennirnir Árni Snævarr og Sigurjón M. Egilsson.
Blaðaljósmyndarinn Gunnar V. Andrésson segir:
„Allt að fara til fjandans, og yfir vanda þjóðarinnar dansa Gróðapungar.“
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir almannatenginn segir: „Mikið er sorglegt að horfa upp á sinn gamla vinnustað, Stöð 2 fara í ruslakörfuna. Hinum gamla vinnustaðnum, RUV veitir ekki af samkeppninni. Þar eru sjónvarpsfréttir búnar að ná ákveðnum lágpunkti enda hefur samkeppnin verið læst bak við áskriftarhlið. En svona er nú komið fyrir fjölmiðlun í landinu og nú verður enn auðveldara að stýra umræðunni með upplýsingaóreiðu og því munu eflaust einhverjir fagna.“
Vonar að haldið verði utan um myndefnið
Þórir Guðmundsson, sem var ritstjóri fréttastofunnar á árunum 2018 til 2021 vonar að haldið verði utan um myndefnið:
„Einn mánuð og níu daga vantar upp á að 40 ár séu síðan við fyrstu starfsmenn Stöðvar 2 settum einkarekna sjónvarpsstöð í loftið, dagana sem Reagan og Gorbatsjov komu til landsins til að binda endi á kalda stríðið í Höfða. Kalt stríð geysar á ný og í kvöld mun starfsfólk Sýnar senda út síðasta fréttatímann.
Hugur minn er hjá fólkinu sem nú missir vinnuna, margt þeirra gamlir félagar sem eru í fremstu röð íslenskra fréttamanna. Léttleiki og ástríða einkenndu fréttir Stöðvar 2 og á kaflaskiptum ferli mínum á fréttastofunni rann aldrei upp dagur sem ég hlakkaði ekki til að fara í vinnuna. Fréttastofa Stöðvar 2 gaf mér tækifæri til að leita uppi fréttir víða um heim, sem var ekki sjálfsagt og gefur framsýni og víðsýni stjórnenda, þar sem Páll Magnússon fyrsti fréttastjórinn er fremstur meðal jafningja, góða einkunn. Síðar fékk ég tækifæri til að sinna því starfi - reyndar við erfiðar fjárhagsaðstæður eins og líklega allir forverar mínir. Vonandi bera stjórnendur Sýnar gæfu til að halda upp á allt það ómetanlega myndefni sem er til staðar eftir þessi 40 ár. Og íslenskt samfélag hefur sannarlega þörf fyrir það frábæra fréttafólk sem nú missir vinnuna.“
Vont fyrir samfélagið
Gunnar Smári Egilsson á Samstöðinni segir að þetta hafi verið fyrirséð:
„Þegar Síminn vildi eignast fjölmiðla Sýnar fylgdu sjónvarpsfréttirnar ekki með. Nú er Ríkissjónvarpið einu sjónvarpsfréttirnar. Við reyndum að þróa sjónvarpsfréttir á Samstöðinni en höfðum ekki þrek til, vantar svona 350 áskrifendur til að geta það.“
Kollegi hans á Samstöðinni, Björn Þorláksson, segir þetta vont fyrir samfélagið.
„Þarna vann ég í tvígang og eignaðist yndislega vini, vinátta við suma snillingana mun haldast til dauða. Það verður nefnilega stundum til einstakt samband til hjá fólki sem lifir í hraða, óvissu, lífsháska og stressi alla daga. Ég vann þarna annars vegar fyrir NFS og hins vegar hjá fréttastofu Stöðvar 2 um langt árabil. En örlög sjónvarpsfrétta Sýnar nú hvetja okkur Samstöðvarfólk til að spýta í.“
Sjónvarpsprinsinn Gísli Marteinn Baldursson segir þetta sorglegt:
„Sorglegt. Og furðulegt. Fréttir Sýnar/Stöðvar 2 hafa verið mjög öflugar með fullt af frábæru fréttafólki. Áhorf hefur líka verið gott, 16% í síðustu tölum (fyrir utan þau sem lásu svo fréttirnar á Vísi). En eigendunum er auðvitað frjálst að hafa meiri áhuga á símarekstri en dagskrárgerð og þá er það bara þannig.“
Eyrún Magnúsdóttir á Gímaldinu tekur í svipaðan streng og Gunnar Smári:
„Þetta var fyrirsjáanlegt en er óendanlega sorglegt. Það er líka kaldhæðnislegt að akkúrat á þeim tímamótum þegar við þurfum mest á vandaðri umfjöllun og alvöru fréttamennsku á halda að þá sé gripið til þessa ráðs. Ég hef talað mig hása um stöðuna í fjölmiðlum undanfarið, bæði við stjórnmálamenn, inni í ráðuneyti menningarmála, í greinaskrifum og í umsögnum til Alþingis og í samtölum og einstaka spjallþáttum,“ segir hún.
„Það vantar því miður skilning á því hvað veldur þessu, og ég hef ekki hitt þann stjórnmálamann sem áttar sig almennilega á hættunni sem fylgir því að fjölmiðlum fækki og þeir veikist. Flestir segjast vilja efla fjölmiðla, en halda nú samt bara áfram án þess að pæla mikið í hvernig það á að gerast.“