Fréttir

Átakalínur: Pólitískur ómöguleiki myndast ef aðildarviðræðum verður hafnað

Mynd
Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar, og Haraldur Ólafsson, formaður Heimssýnar. DV/KSJ

„Ef það er nei, þá myndast ákveðinn pólitískur ómöguleiki. Þess vegna verðum við að segja já til þess að halda þessu tækifæri og þessum glugga opnum,“ segir Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar. Snærós var gestur í þættinum Átakalínur ásamt Haraldi Ólafssyni, formanni Heimssýnar, þar sem farið var yfir kosti þess og galla að segja já eða nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. 

Snærós segir að ef nei verði ofan á í þjóðaratkvæðagreiðslunni þá gerist í raun lítið. 

„Við verðum áfram föst í vítahring vaxta og verðbólgu. Við verðum áfram dýrasta land í heimi. Við verðum áfram að berjast við þetta ein,“ segir hún. 

„Það er ekkert veruleiki sem ég persónulega óttast neitt. Við þekkjum það vel. Við Íslendingar þurfum að vera sérfræðingar í fjármálum til þess að geta tekið húsnæðislán og munum halda því áfram. Það er hins vegar ekkert ástand sem ég óska neinum.“

Þá verði til pólitískur ómöguleiki þar sem dyrunum að Evrópusambandinu verði lokað. 

Haraldur segir að ef nei verði ofan á þá fari aðild Íslands að Evrópusambandinu af dagskrá í einhvern tíma. 

„Þá held ég að við fáum bara frí næstu tuttugu árin. Allavega tíu ár,“ segir Haraldur

„Maður veit ekkert hvað gerist í Evrópusambandinu, kannski breytist það mjög mikið, Guð má vita. Norðmenn fengu þarna fyrst frí í 20 ár, eftir fyrstu atkvæðagreiðsluna.“

Bendir hann á kannanir sem hafa sýnt að meirihluti Íslendinga vill ekki ganga í Evrópusambandið. Telur hann að það sé verið að byrja á öfugum enda í þessu ferli. „Það er minnihluti sem vill ganga inn og þegar sú staða er uppi þá er ekkert sniðugt að vera að sækja um, það er bara bjölluat. Menn eiga að vinna að því að sannfæra meirihlutann um það að ganga þarna inn og hafa þokkalega stöðugan meirihluta fyrir aðild áður en að ríkisstjórn sækja um aðild.“

Hér má horfa á þáttinn í heild sinni.