Fréttir

Átakalínur: Leigubílstjórar sem segja já og erlendir blaðamenn sem segja Evrópuher

Mynd
Haraldur Ólafsson, formaður Heimssýnar, og Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar. DV/KSJ

Ef já verður ofan á í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst þá munu aðildarviðræður hefjast við Evrópusambandið. Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar, segir aðildarviðræðurnar verði leiddar af færustu sérfræðingum, það sé skynsamlegasta leiðin til að fara.

„Nú kannski fá einhverjir hérna grænar bólur en sjáum það bara í Covid hvað það var gott að leiða okkur í gegnum það með sérfræðingum og þannig verða aðildarviðræðurnar líka. Það er ekki þannig að íslenskir stjórnmálamenn fari hönd í hönd til Brussel og bítist við aðra stjórnmálamenn. Þetta er bara leitt af sérfræðingum. Og við getum alveg gert það,“ segir Snærós. 

„Á leiðinni hingað þá hérna tók ég leigubíl með einum óákveðnum kjósanda, eina óákveðna leigubílstjórann sem ég hef tekið undanfarna daga, allir hinir fimm hafa sagt: „Ætla að segja já.“ Og hann segir: „Já, mér finnst bara þjóðin klofin í þessu máli.“ Ég segi: „Já, ég held að það sé alveg rétt hjá þér. Þetta verður hérna tæpt. Þetta verður einhvers staðar í kringum fimmtíu prósentin öðrum hvorum megin.“ Ég held við séum algjörlega sameinuð í því hvernig samning við viljum sjá. Ef við förum í aðildarviðræðurnar, þá erum við sammála um það hvernig sá samningur á að líta út sem við myndum sætta okkur við.“

Í þættinum ræddi Haraldur Ólafsson, formaður Heimssýnar, um þann menningarmun á milli Íslands og ríkja Evrópusambandsins þar sem hermennska sé ríkur þáttur í menningunni.

„Það er alveg ljóst að Evrópusambandið ætlar sér að koma upp einhvers konar her. Um það virðast allir vera sammála nema einhver lítill hópur hér á Íslandi,“ segir hann. „Ég get nefnt það til gamans að ég hef talað við 25-30 erlenda blaðamenn og þeir eiga allir sameiginlegt að líta svo á að það sé bara tímaspursmál hvenær verði komið upp Evrópuher.“

Það sé ekki eitthvað sem passi við íslenska menningu. „Þetta yrði þá Evrópuher sem yrði settur upp einhvers staðar á meginlandinu væntanlega og til að byrja með þyrfti að borga í hann og svo ég veit ekki hvernig menn fari að því að manna hann, líklega bara með því að auglýsa eftir fólki, til dæmis að auglýsa í brottfallinu úr menntaskólum á Íslandi. Það getur verið að einhverjir myndu vilja fara í það,“ segir Haraldur.

„Evrópusambandið hefur rætt herskyldu, því finnst það alveg eðlilegur möguleiki í stöðunni, þótt að fólki á Íslandi finnist það almennt ekki. Það er komin upp sú staða að það eru mjög ólíkar skoðanir og það er forsenda fyrir því að afsala sér stjórnvaldi til einhvers annars aðila er að sá aðili sé nú kannski ekkert alltof ólíkur þér.“

Hér má horfa á þáttinn í heild sinni.