Fréttir

Kristinn lét gervigreindina greina þúsundir ummæla um Samúel – Niðurstöðurnar athyglisverðar

Mynd

Kristinn Hrafnsson, fjölmiðlamaður og ritstjóri Wikileaks, lét gervigreindina greina 5.700 athugasemdir sem skrifaðar voru undir þætti Piers Morgan þar sem hinn íslenski Samúel Guðmundsson mætti hinum umdeilda Rabbi Shmuley.

Viðtalið vakti gríðarlega athygli og hrósuðu margir Samúel fyrir þá stóísku ró sem hann sýndi í viðtalinu og ekki síður málefnaleg svör.

Í færslu á Facebook-síðu sinni segir Kristinn að niðurstaða greiningarinnar hafi verið afgerandi. Þannig hafi 91% stutt Samúel með skýrum hætti.

„En stuðningurinn við Samúel færðist mjög áberandi yfir á Ísland og Íslendinga í heild. Áhugavert var að þetta viðtal sýndi skýrt merki um að styðja við ferðaþjónustuna – ansi margir sögðust í kjölfar þáttarins annað hvort ætla að bóka ferð til Íslands eða hefðu nú þegar gert það,” segir Kristinn sem birtir svo samandregnar niðurstöður af ChatGPT:

„Framkoma Samúels varpaði óvenju jákvæðu ljósi á Ísland. Áhorfendur tengdu ítrekað rólega, húmoríska og óhrædda framkomu hans við Íslendinga almennt. Í athugasemdunum mátti sjá fjölda ummæla á borð við „Virðing fyrir Íslandi“, „Ég elska Ísland“ og „Lengi lifi Ísland“. Athyglisvert er að þessi jákvæða ímynd virtist einnig vekja áhuga á ferðalögum til Íslands. Vel á annað hundrað athugasemdir fjölluðu um að heimsækja Ísland, ferðast þangað eða jafnvel flytja til landsins, og nokkrir sögðust þegar hafa bókað flug. Ein vinsælasta athugasemdin, með um 2.800 læk, sagði einfaldlega: „Samúel var rétt í þessu að stórauka ferðamannastrauminn til Íslands.“

Kristinn segir í færslunni að athugasemdir á YouTube geti vissulega ekki sannað raunverulega fjölgun ferðamanna, en þær gefi þó skýra vísbendingu um jákvæð áhrif á ímynd Íslands og mögulegan ávinning fyrir ferðaþjónustuna.

„Samúel tók sér dagsfrí í vinnunni til að undirbúa sig fyrir þáttinn. Mér sýnist einboðið að Íslandsstofa bæti honum það vinnutap – og gott betur,“ segir Kristinn að lokum.