„Þeir bundu hendurnar mínar og huldu andlitið mitt þegar ég mætti fyrir áfrýjunardómstólinn. Þeir hýddu mig fyrir framan alla viðstadda. Ég fékk 39 högg. Þeir töldu höggin. Í skjalinu þar sem kom fram ásökunin stóð einnig hver refsingin væri. Ég var vinkona manns, við vorum bara rétt að byrja að kynnast hvort öðru. Okkur langaði til að giftast en þá vorum við handtekin. Ég veit ekki hvernig Talibanarnir komust að því eða hvort einhver tilkynnti okkur.“
Svona hljómar nafnlaus frásögn konu í Afganistan. Breska ríkisútvarpið BBC stendur nú fyrir ítarlegri umfjöllun um stöðu kvenna í Afganistan nú þegar fimm ár eru liðin frá því að Talibanar tóku aftur völdin í landinu eftir tuttugu ára veru Bandaríkjahers.
Talibanar eru samtök herskárra öfgasinnaðra múslima. Þeir réðu ríkjum í Afganistan frá 1996 til 2001 þegar Bandaríkin réðust inn í landið þar sem stjórnvöld neituðu þeim um að framselja hryðjuverkmanninn Osama bin Laden og aðra forsprakka Al Queda sem stóðu að hryðjuverkunum 11. september. Talibanar tóku svo aftur völdin árið 2021 og er staða landsins hræðileg, þá sérstaklega fyrir konur en þeir hafa innleitt ströng Sharíalög. Til dæmis mega konur ekki sýna sig á almannafæri í öðrum klæðnaði en búrkum en þær hylja þær alveg. Þar að auki njóta konur engra réttinda til menntunar eða annars.
Átti drauma og var að safna reynslu
Umfjöllunin inniheldur mörg viðtöl við konur, mörg nafnlaus af ótta við að hljóta verra af. Meðal annars er rætt við Elu sem starfar á tannlæknastofu í höfuðborginni Kabúl. Vonast hún til þess að senda systur sínar úr landi til að þær geti fengið menntun. Var hún þá spurð um viðhorf karla til stöðunnar.
„Margir feður og bræður eru ánægðir með þessar tálmanir á menntun kvenna og frelsi til að fara út,“ sagði Ela.
Margar konur eru enn á vinnumarkaði en sjaldnast við neitt sem þær myndu sjálfar kjósa. „Mig langaði til að klára námið mitt,“ sagði Noori sem var í háskólanámi þegar Talibanar tóku völdin. „Þegar ég sæki um vinnu þá er ég beðin um háskólagráðu en þar sem ég náði ekki að klára fæ ég ekki starfið.“ Starfar hún nú við að búa til sultu.
Zuhal starfaði sem fréttakona í sjónvarpi. „Á lýðveldistímanum þá var líf mitt allt öðruvísi. Ég vaknaði á hverjum morgni spennt fyrir að fara í vinnuna,“ sagði Zuhal. „Ég var með drauma og áætlanir um framtíðina. Ég var alltaf að safna reynslu.“
Rætt var við Georgette Gagnon, fulltrúa Sameinuðu þjóðanna í Kabúl, sem segir það ganga hægt að vinna að meiri réttindum. Á sama tíma er ólíklegt að viðskiptabanni verði aflétt án þess að bætt verði úr réttindum kvenna og mannréttinda almennt. Rússar hafa viðurkennt stjórn Talibana og nokkur önnur ríki hafa gert samninga við landið, þar á meðal Kína og Indland.