Fréttir

Deilt um veðsetningu Steinþórs á helmingnum af safnahúsi

Mynd
Steinþór Jónsson er meirihlutaeigandi í Hótel Keflavík og hótelstjóri og eigandi félags sem 49 prósent hlut í hinum svokallaða Vatnsneshúsi. Mynd: Skjáskot/Youtube.

Á bæjarráðsfundi í Reykjanesbæ í gær var samþykkt að veita heimild til þess að 49 prósent eignarhlutur í húsi sem áður hýsti byggðasafn bæjarins og er enn skráð sem safn verði veðsettur. Hluturinn er í eigu félags sem er í eigu Steinþórs Jónssonar hótelstjóra og aðaleiganda Hótels Keflavíkur en umrætt hús er steinsnar frá hótelinu. Reykjanesbær á 51 prósent hlut í húsinu en það var fært Keflavíkurbæ að gjöf á áttunda áratug síðustu aldar. Minni - og meirihluti bæjarráðs deildu töluvert um hvort veita ætti félagi Steinþórs heimild til veðsetningarinnar og taldi minnihlutinn það of langt gengið að heimila það og að það hafi ekki verið ætlunin, með sölu á hlutnum til félags Steinþórs, að slíkt væri mögulegt.

Um er að ræða Vatnsnesveg 8 sem er nokkuð veglegt hús en það stendur á eilítilli hæð og var áður hluti af bújörð, samnefndri Vatnsnesi. Húsið er yfirleitt ekki kallað annað en Vatnsneshúsið. Það var reist á fjórða áratug síðustu aldar sem íbúðarhús en var gefið Keflavíkurbæ árið 1974 í því skyni að opna þar safn. Byggðasafn var starfrækt í húsinu um árabil en starfsemi safnsins var síðan flutt annað. Húsið er hins vegar enn skráð í fasteignaskrá sem safn. Það er 268,5 fermetrar að stærð og fasteignamat þess er 85,9 milljónir króna.

Mynd

Vatnsneshúsið séð frá Hótel Keflavík. Mynd: Skjáskot/Já.is.

Uppbygging og kaup

Eftir að byggðasafnið flutti úr Vatnsneshúsinu var lítið um að vera í því og það fór að drabbast niður. Steinþór Jónsson hótelstjóri og aðaleigandi Hótels Keflavíkur, sem eins og áður segir er örskammt frá Vatnsneshúsinu, óskaði eftir samstarfi við bæjaryfirvöld um endurbætur á húsinu og sá fyrir sér meðal annars að hægt væri að nýta það í ferðaþjónustu og sem eins konar móttökuhús fyrir Reykjanesbæ.

Árið 2022 var undirritaður samstarfssamningur um endurbæturnar milli Reykjanesbæjar og fyrirtækisins KEF ehf.

Í fyrirtækjaskrá er Steinþór skráður sem raunverulegur eigandi KEF en eignarhaldið sagt óbeint.

Steinþór undirritaði samninginn fyrir hönd KEF en samhliða undirrituninni var undirritaður samningur um kaup félagsins á 49 prósent hlut í húsinu.

Endurbótunum lauk síðan fyrr á þessu ári og var það þá opnað á ný og var því fagnað með veglegri tónlistarhátíð.

Að veðsetja

Ósk félags Steinþórs um að fá að veðsetja eignarhlutinn var tekinn fyrir á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar í gær. Ekki kemur fram í fundargerð hvers vegna standi til að veðsetja þessi 49 prósent en fram hefur komið að Steinþór hyggi á stækkun hótelsins, uppbyggingu baðlóns og miðstöðvar ferðaþjónustu auk íbúða. Þær framkvæmdir munu án efa verða mun dýrari en sem nemur þeirri upphæð sem hægt er að fá með veðsetningu helmingsins af Vatnsneshúsinu.

Beiðni um heimild til veðsetningarinnar var lögð fram á fundi bæjarráðs í gær. Minnihluti Framsóknarflokks og Samfylkingar lagði þá fram bókun þar sem fram kom að í gjafabréfi frá 1969, þar sem Bjarnfríður Sigurðardóttir þáverandi eigandi ánafnaði Keflavíkurbæ húsinu að henni látinni, kæmi fram að það væri óheimilt að veðsetja húsið. Í samstarfssamningi bæjarins og KEF frá 2022 væri einnig áréttað að í bréfinu kæmi fram að veðsetning væri óheimil. Þar með væri það ekki leyfilegt að heimila félagi Steinþórs að veðsetja eignarhlut sinn í húsinu. Vissulega hefði eigandi almennt frelsi til að ráðstafa eign sinni en í þessu tilfelli væri um skýrar kvaðir að ræða.

Má víst

Meirihluti bæjarráðs, sem samanstendur af fulltrúum Sjálfstæðisflokks og Miðflokks, svaraði með bókun þar sem kom fram að það væri fyllilega heimilt að veðsetja hlutinn og að veðsetningin næði ekki til 51 prósent eignarhlutar Reykjanesbæjar.

Vildi meirihlutinn meina að bókun minnihlutans væri byggð á misskilningi og röngum forsendum. Vitnaði meirihlutinn í orðalag gjafabréfsins þar sem stóð:

„Óheimilt er mér að selja, gefa eða veðsetja eign þessa svo að í bága komi við gerning þennan.“

Sagði meirihlutinn því augljóst að bann við veðsetningu hafi snúið að Bjarnfríði sjálfri sem væri augljóslega ekki lengur eigandi hússins. Minnti meirihlutinn einnig á að bæjarfulltrúar Framsóknarflokks og Samfylkingar hefðu staðið fyrir því þegar þeir voru í meirihluta að selja 49 prósent hlutinn í húsinu.

Minnihlutinn svaraði með annarri bókun þar sem kom fram að vissulega væri heimilt að veðsetja hlutinn. Það kæmi þó fram í gjafabréfinu og samtarfssamningi KEF og bæjarins að svo væri ekki. Veðsetningin flækti þessa sölu sveitarfélagsins á 49 prósent hlutnum í húsinu. Bæjarstjórn hafi á þeim tíma ákveðið að fara þessa leið til að stuðla að viðhaldi og uppbyggingu Vatnsneshússins og um þetta hefði einnig verið haft samráð við landeigendur. Við söluna hafi ekki verið tekið sérstaklega á veðsetningu hússins og á því byggi fulltrúar minnihlutans afstöðu sína.

Meirihlutinn samþykkti síðan að veita félagi Steinþórs heimild til veðsetningarinnar en minnihlutinn greiddi atkvæði á móti.