Fréttir

Fluttur á bráðamóttöku eftir árekstur rafmagnshjóls og rafhlaupahjóls

Mynd

Í nógu hefur verið að snúast í dag hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en meðal verkefna dagsins var árekstur rafmagnsreiðhjóls og rafhlaupahjóls. Ökumaður annars hjólsins var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar sem nær yfir tímabilið frá klukkan 5 í morgun til klukkan 17 í dag.

Verkefni lögreglustöðvar 1 sem sér um austurbæ, miðbæ og vesturbæ Reykjavíkur, auk Seltjarnarness, voru að tilkynnt var um tvo aðila í annarlegu ástandi. Engan var að finna á svæðinu er lögreglu bar að garði. Einnig var tilkynnt um óvelkominn aðila og þess óskað að lögregla fjarlægði viðkomandi sem var dónalegur við lögreglu en yfirgaf loks vettvang. Tilkynnt var svo um árekstur, eða umferðarslys eins og lögreglan orðar það, á milli ökumanns rafhlaupahjóls og ökumann rafmagnsreiðhjóls. Annar þeirra var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans og.lögregla hefur ekki upplýsingar um líðan hans. Þess er ekki getið á hvoru hjólinu sá aðili sem fluttur var á bráðamóttökuna var.

Loks þurfti lögreglustöð 1 að eiga við tilkynningu um þjófnað en málið er í rannsókn.

Á lögreglustöð 2 sem sér um löggæslu í Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi barst tilkynning um tvo þjófnaði í verslun. Málið var afgreitt á vettvangi.

Helstu verkefni lögreglustöðvar 3 sem sér um löggæslu í Kópavogi og Breiðholti voru að tilkynnt var um þjófnað en málið er í rannsókn. Aðili var handtekinn grunaður um líkamsárás og hótanir og það mál er einnig í rannsókn. Loks var ökumaður rafhlaupahjóls stöðvaður þar sem hjólinu var ekið vel yfir 25 kílómetra hraða á klukkustund. Rafhlaupahjólið var haldlagt í þágu rannsóknar.

Loks þurfti lögreglustöð 4 sem sér um Grafarvog, Mosfellsbæ, Árbæ, Grafarholt og Kjalarnes að eiga við innbrot og þjófnað en það mál er í rannsókn.