Fréttir

Ein kona á meðal handteknu í Vallargerðismálinu

Mynd
Frá Vallargerði. Mynd: Já.is

Rannsókn lögreglu á manndrápi í Vallargerði síðastliðinn sunnudag telst enn vera á frumstigi en miðar þó áfram. 

„Við erum enn bara endalaust að fara yfir gögn,“ segir Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í stuttu samtali við DV. 

„Þetta telst enn á frumstigi en mjakast samt,“ segir Elín. Hún sagðist á þessu augnabliki ekki geta staðfest hvað margir hefðu verið handteknir við rannsókn málsins. 

Samkvæmt fréttum RÚV frá því snemma í gærkvöld hafa 13 verið handteknir. Þar af sitja fjórir í gæsluvarðhaldi. Tveir þeirra sitja í gæsluvarðhaldi erlendis, annar á Spáni og hinn í Póllandi. Annar þeirra sem sitja í gæsluvarðhaldi hér á landi er Íslendingur en hinn er útlendingur. 

Sögð hafa aðstoðað við flótta

Samkvæmt heimildum DV er íslensk kona á meðal þeirra sem hafa verið handtekin vegna rannsóknar málsins. 

Þetta staðfestir Elín Agnes við DV. 

Samkvæmt heimildum DV aðstoðaði konan einn hinna grunuðu við að komast úr landi. Sá situr í gæsluvarðhaldi erlendis. Hún er sögð hafa keypt fyrir hann flugmiða og ekið honum á Keflavíkurflugvöll. Hann var síðan handtekinn erlendis. 

Hinn látni er pólskur maður á fimmtugsaldri sem bjó í húsinu í Vallargerði ásamt fjölskyldu sinni. Enn liggur ekkert fyrir um tengsl hans við hina grunuðu né ástæðu árásarinnar. 

Samkvæmt heimildum RÚV var sýru skvett yfir manninn og bitvopni beitt við árásina.