Benedikt Jóhannesson, fyrrverandi fjármála- og efnahagsráðherra, gerði stólpagrín að fundi Carls Baudenbacher og þeim sem þar voru samankomnir í færslu á Facebook. Grínið féll þó misvel í kramið og hefur Benedikt fengið bágt fyrir færsluna.
Baudenbacher, sem er fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, hélt fyrirlestur um Ísland og Evrópusambandið sem haldinn var í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll á mánudag.
Margmenni var á fundinum, þar á meðal einstaklingar sem voru áberandi í íslensku stjórnmálalífi á árum áður. Benedikt birti mynd frá fundinum og eftirfarandi færslu:
„Árið er 1978. Frans Beckenbauer flytur erindi í Sjálfstæðishúsinu um hætturnar af Kola- og stálbandalaginu. Fyrirlesturinn var bannaður innan 75 en einn svindlaði sér inn. (Líklega af vefnum Gamlar ljósmyndir).”
Þessi sem „svindlaði sér inn“ í háðspistli Benedikts er Guðlaugur Þór Þórðarson sem verður sextugur á næsta ári.
Gamalt fólk stígi til hliðar
Færsla Benedikts féll ekki í kramið hjá öllum og lýsti til dæmis Einar Bárðarson vanþóknun sinni.
„Hér er farið í manninn en ekki málið - 95% af umræðunni um þessar kosningar eru þannig sem eru engum til gagns - síst þeim sem eru óákveðnir.“
Bubbi Morthens tónlistarmaður lét sitt ekki eftir liggja.
„Aldur er bara tala. En vilja taka lýðræði af fólki út af ótta við að þurfa horfast í augu við sannleika sem þið sem teljið lýðræði vera skiptimynt á markaði Egósins er bara ekki boðlegt. Unga fólkið á skilið að fá tækifæri og best væri að gamalt fólk stígi til hliðar.“
Grétar Erlendsson hjólaði í Benedikt og sagði færsluna ósmekklega. „Þetta er þér algerlega til skammar og hafðu mikla skömm af.“
„Benedikt er hvítur fyrir hærum og kominn á áttræðisaldur. Það fer að verða tvísýnt um það hve marktækur hann er fyrir ellihrumleika,“ sagði fjölmiðlakonan Erna Ýr Öldudóttir.
„Alltaf stutt í grínið“
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands, svaraði Benedikt einnig:
„Óskaplega er ég þakklátur fyrir, að þú gerir aðeins gys að fólki fyrir aldur þess, en vilt ekki svipta það atkvæðisrétti eins og unga jáfólkið.“
Benedikt svaraði athugasemd Hannesar svona: „Alltaf stutt í grínið hjá þér Hannes.“
Jón Viðar Jónsson, þekktasti leikhúsgagnrýnandi þjóðarinnar og samfélagsrýnir, bætti svo við í háðskum tón:
„Þetta er auðvitað hárrétt athugað eins og allt annað sem hrýtur úr lyklaborði HHG og er ekki þverfótað hér á FB fyrir. Afskaplega ljótt og lágkúrulegt af þér. Ekki vil ég fara með svoleiðis fólki inní ESB, segi ekki meir. Allt annað ef þar verður mikið af jafn skemmtilegu og gáfuðu fólki og okkur Hannesi.“