Fréttir

Svali hneykslaður: „Þetta er pínu dónalegt, þannig séð“

Mynd
Sigvaldi Kaldalóns

Útvarpsmaðurinn Sigvaldi Kaldalóns, Svali, furðar sig á háu verðlagi fyrir vestan sem tilkomið er vegna mikillar eftirspurnar ferðafólks, innlends sem erlends, vegna almyrkvans í dag. 

Í story á Instagram segir Svali:

„Ég var að tala við fólk, fjölskyldumeðlimi, sem smelltu sér vestur og fóru á tjaldsvæði. Nóttin í nótt, 32 þúsund kall fyrir tvo. Er þetta ekki svolítið langt gengið? Ég skil að menn vilji fá eitthvað meira, en þetta er sennilega 10 sinnum meira en hefðbundið gjald. Þetta er pínu dónalegt, þannig séð.“

Ekki kemur fram í máli Svala hvaða stað er um að ræða, en á Vestfjörðum eru alls 19 tjaldsvæði og á Vesturlandi sami fjöldi samkvæmt vefnum Blika.is. Verð á Vestfjörðum er frá 3.000 - 5.600 kr. (2 staðir gefa ekki upp verð) og á Vesturlandi frá 3.200 - 5.000 kr. 

Í byrjun maí birti DV frétt þar sem erlendur ferðamaður bar sig ekki vel:

„Ég bókaði ferð mína til Íslands fyrir einu og hálfu ári til að sjá sólmyrkvann... nú er verið að aflýsa öllu,“ segir erlendur ferðamaður í færslu á samfélagsmiðlinum Reddit. Gisting sem hann hafði bókað með löngum fyrirvara var allt í einu auglýst á margföldu verði.

Sjá einnig: Dæmi um að gististaðir aflýsi gistingum ferðamanna á sólmyrkvanum og auglýsi aftur á margföldu verði – „Algjörlega klikkað“

Frétt Vísis sama dag var með sama formi. Þar var rætt við Jón Bjarna Steinsson, sem heldur hátíðina Eclipse Festival á Hellissandi. 

„Við erum fyrir löngu búin að tryggja gistingu fyrir okkur og okkar fólk. En við höfum nýverið fengið „tilboð“ frá fólki sem er að selja gistingar og bjóða okkur þær á uppsprengdu verði. Okkur grunar að um sé að ræða fólk sem er að afbóka og vilji svo selja okkar gestum,“ sagði Jón Bjarni og bætti við:  „En það er svona smá villta vesturs-dæmi í gangi núna.“