Fréttir

Rabbíninn segist hafa óttast um líf sitt og fjölskyldu sinnar: „Ísland, hvað kom fyrir þig?“

Mynd

Rabbíninn umdeildi Shmuley Boteach segir að hann hafi á tímabili óttast um líf sitt og fjölskyldu sinnar þegar hann var staddur hér á landi. Í ítarlegri grein fer hann yfir reynslu sína á Íslandi. Þá mun hann mæta Íslendingnum sem hann átti í orðaskiptum við á Akureyri í spjallþætti Piers Morgan. 

Boteach er þekktur fyrir m.a. bókaskrif, heimildarmyndagerð og einarðan stuðning sinn við Ísrael og Donald Trump forseta Bandaríkjanna. Hann greindi frá því í lok júlí að hann væri kominn til Íslands til að komast að því hvers vegna svo margir hér á landi væru ósáttir við Ísrael. Virtist hann þó ekki hafa mikinn áhuga á að komast að botni í málinu með því að tala rólega heldur var hann meira áhugasamur um að kalla að Íslendingum að þeir ættu að vera þakklátir Bandaríkjunum fyrir að bjarga okkur frá því að vera hersetin af ýmist nasistum eða Sovétmönnum. 

Sjá einnigFrægur rabbíni vinnur að heimildarmynd um Ísland:„Við ætlum að reyna að komast til botns í þessu“

Fjallað var um það að Boteach hafi margsinnis lent í orðaskaki við Íslendinga meðan á dvölinni hefur staðið.

Mætir Samúel hjá Piers Morgan

Meðal annars sakaði hann Íslending sem sagði við hann á Akureyri: „Fuck Israel“ um að hafa haft uppi gyðingahatur í sinn garð. Elti Boteach manninn og kærustu hans og krafði um svör. Einnig kom upp atvik á bar í miðborg Reykjavíkur þar sem Boteach hafði uppi svipaðar ásakanir og sagði að sér hefði verið vísað út vegna þess að hann væri Gyðingur. Á samfélagsmiðlum var hins vegar fullyrt að Boteach hefði veist að gestum á staðnum og haft frumkvæði að illdeilum.

Sjá einnig: Kallar eftir farbanni á alla tengda Ísraelsher – Rabbíninn á leið úr landi

Maðurinn sem mætti Boteach á Akureyri, Samúel Guðmundsson, hefur nú staðfest á Instagram að hann muni mæta rabbínanum í þætti Piers Morgan. Spjallþátturinn er þekktur fyrir að harðar rökræður, þar á meðal um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs. 

Vill að Ísland breytist

Í ítarlegri grein á vefnum Israel National News segir Boteach að hann hafi verið stöðugt áreittur á meðan dvöl sinni stóð á Íslandi. „Það var blótað í áttina að mér, ég var stöðugt kallaður barnamorðingi. Það var sífellt kallað á mig Frjáls Palestína!, ekki sem slagorð á stjórnmálafundi heldur beint að mér, gyðingi sem geng niður götu með sinni gyðingafjölskyldu og hetjum úr ísraelska hernum sem komu hingað í frí í nokkra daga frá því að berjast fyrir tilverurétti Ísraels.“

Þá hafi tvisvar verið ráðist á hann. „Og á rúmlega hálftíma göngu í Reykjavík var ég áreittur sjö sinnum. Sjö. Hálftími,“ segir hann. „Það voru augnablik þar sem ég óttaðist um öryggi mitt, jafnvel um líf mitt og fjölskyldu minnar.“ Viðmótið hafi breyst frá því hann kom hingað áður, spyr hann: „Ísland, hvað kom fyrir þig?“

Hann viðurkennir í greininni að það sé hægt að gera greinarmun á gyðingum og stuðningsmönnum aðgerða Ísraels. „En þegar orðið Zíonisti er farið að vera blótsyrði sem þú öskrar á gyðing sem stendur fyrir framan þig þá má alveg segja að Zíonisti sé orðið kurteisa evrópska orðið yfir gyðing.“

Boteach vill þó ekki að gyðingar sniðgangi Ísland og vill hann ekki fordæma landið. „Ég vil að Ísland breytist,“ segir hann. „Það væri siðferðislega rangt af mér að fordæma heila þjóð vegna þeirra sem áreittu mig, alveg eins og það er rangt af þeim að fordæma alla gyðinga vegna þess að þeir hata ríkisstjórn Ísraels.“