Mál málanna í dag hér á landi og víðar á norðurhveli jarðar er sólmyrkvinn og þá sérstaklega almyrkvi á sólu sem átti að sjást í skamma stund, frá vestasta hluta landsins, skömmu fyrir klukkan 18 í kvöld. Vegna veðurfarsins sást þó ekki mikið til hans í gegnum skýin nema þá helst á Vestfjörðum. Eins og svo oft þegar stórir viðburðir eiga sér stað, nú á tímum, hafa margir tjáð sig um almyrkvann á samfélagsmiðlum. Hjá mörgum sem fylgdust með almyrkvanum má greina mikla ánægju með upplifunina þrátt fyrir að skýin hafi verið fyrir. Sumir telja þó myrkrið af völdum almyrkvans alls ekkert merkilegt og enn aðrir kvörtuðu yfir viðburðum sem efnt var til í tilefni af almyrkvanum. Hér á eftir fer eilítið sýnishorn af því hvað landsmenn höfðu að segja um almyrkvann í færslum eða athugasemdum á samfélagsmiðlum.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins lét ekki skýjafarið skemma fyrir sér upplifunina:
„Þetta var sannarlega mikil upplifun. Bestu þakkir fyrir undirbúninginn Stjörnu-Sævar Helgi Bragason og allir sem komu að því að láta þetta ganga vel fyrir sig.“
Í athugasemdum við færsluna er Sigmundi Davíð hrósað fyrir að vera jákvæður og beðinn um að halda sig fremur á þeirri línu framvegis.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður á Morgunblaðinu telur veðrið á þessu sögulega kvöldi dæmigert fyrir Ísland:
„Það er svo ógeðslega íslenskt að það sé rigning og þoka og jafnvel þrumuveður þegar sólmyrkvi á sér stað. Svo styttir upp og léttir til þegar þetta er afstaðið. Það var gott veður í gær og verður gott veður á morgun. Allt eins og það á að vera. Íslenskt.“
Samt gaman
Í fréttavakt á bæði Rúv og Vísi voru fréttamenn einhuga um að þrátt fyrir að skýin hafi hindrað það að hægt væri að sjá almyrkvann í öllu sínu veldi frá suðvesturhorninum þá hafi upplifunin verið tilkomumikil og áhrifarík.
Sumir voru í aðstöðu til að komast yfir skýin eins og Eliza Reid rithöfundur og fyrrum forsetafrú sem var um borð í flugvél og gat því séð almyrkvann vel.
Sigríður Pétursdóttir rithöfundur og fjölmiðlakona hafði ekki áhuga á því eins og raunar fleiri að upplifa almyrkvann í margmenni:
„Á Ægisíðu óttuðumst við að það yrði sennilega of mikið skvaldur svo við flýttum okkur til baka og inn í gamla kirkjugarðinn við Suðurgötu. Þar var magnað að vera. Smáfuglarnir þögnuðu en mávarnir á Tjörninni gjörsamlega trylltust.“
Fuglarnir
Illugi Jökulsson rithöfundur og fjölmiðlamaður hafði einnig sérstaklega orð á viðbrögðum mávanna í miðbæ Reykjavíkur.
Í athugasemdum við færslu Illuga kemur fram að mávar og aðrir fuglar víðar en í miðbænum hafi látið í sér heyra. Guðni Tómasson fyrrum útvarpsmaður og núverandi framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands segir að mávar í vesturbæ Reykjavíkur hafi hagað sér á sams konar hátt og Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur hefur svipaða sögu að segja frá Álftanesi.
Stórkostlegt
Í fjölda athugasemda til að mynda við fréttir fjölmiðla má sjá að mörgum þótti stórkostlegt að upplifa almyrkvann og jafnvel þótt að skýin væru að þvælast eitthvað fyrir.
„Alveg magnað það var mikið myrkur hér í Garðabæ alveg magnað hef aldrei upplifað svona myrkur.“
„Upplifði sólmyrkvann ásamt fjölda manns á Laugarásnum. Mögnuð stund.“
„Eitt stórt: VÁ.“
„Þetta var mjög sérstök, falleg upplifun hér í Grafarvogi. Hef aldrei fengið jafn mikla gæsahúð á ævi minni.“
„Undurkyrrð, fuglarnir þögnuðu og hurfu, himinninn dökknaði ámóta hratt og hann grámyglaðist aftur um mínútu síðar. Hljóð og góð örstund.“
Ekkert svo merkilegt
Sumum fannst hins vegar ekkert svo mikið til koma og einstaka menn úr þeim hópi áttu pínulítið bágt með að skilja af hverju:
„Miðað við upplifun flestra hér er greinilegt eitthvað að mér.“
„Þetta var bara eins og setjast út í garð í eina mínútu um nótt. Hvað átti að gerast ?“
Einar Steingrímsson stærðfræðingur og álitsgjafi tók undir að myrkrið af völdum almyrkvans væri ekkert sérstakt:
„Öh, ..., nei ..., þetta er eins og venjulegt myrkur.“
Því er hins vegar andmælt í sumum athugasemdum við færslu Einars:
„Vertu smá hrifnæmur. Þetta var magnað.“
Gunnar Smári Egilsson fjölmiðlamaður og forkólfur Samstöðvarinnar virðist vera á svipaðri skoðun og Einar:
Ákveðið atriði við hegðun þeirra sem gerðu sér ferð til að fylgjast með almyrkvanum vakti athygli lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu:
Hafnarfjörður
Á Víðistaðatúni í Hafnarfirði var haldin tónlistarhátíðin Echolalia í tilefni af sólmyrkvanum þar sem sjálf Björk Guðmundsdóttir kom fram. Margir mættu á hátíðina og skemmtu sér en ekki voru allir íbúar í nágrenninu ánægðir og gerðu meðal annars athugasemdir við götulokanir og hljóðið frá hátíðarsvæðinu:
„Almyrkvi sem endurtekur sig ekki í 170 ár og þið rænið okkur íbúana þessari reynslu með því að halda þessa tónleika á Víðistaðatúni. Hvers vegna mátti ekki halda þá t.d. í Kaplakrika eða einhversstaðar EKKI nálægt heimilum fólks?! Ég var búin að hlakka svo til að liggja úti í garðinum mínum og upplifa þögnina sem fylgir svona almyrkva en það er ónýtt.“
„Svo á partur af upplifuninni að sjá sólmyrkva að heyra náttúruna þagna.“