Fréttir

Manndráp í Vallargerði: Skvettu sýru á hinn látna

Mynd
Frá Vallargerði. Mynd: Já.is

Rannsókn á manndrápi sem framið var í húsi við Vallargerði í Kópavogi um helgina stendur yfir. Fjöldi þeirra sem handteknir hafa verið vegna málsins er nú á annan tug og talið er að sýru hafi verið skvett á manninn sem myrtur var auk þess sem hann var stunginn.

Þetta kemur fram í frétt Rúv.

Alls hafa 13 verið handteknir vegna málsins bæði hér á landi og í Póllandi og á Spáni. 

Fjórir sitja í gæsluvarðhaldi, tveir hér á landi, einn í Póllandi og einn á Spáni en sá látni var pólskur ríkisborgari sem bjó í húsinu.

Rúv hefur heimildir fyrir því að skvett hafi verið sýru yfir hinn látna auk þess að stinga hann með eggvopni.

Elín Agnes Eide Kristínardóttir yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, var ekki tilbúinn til að staðfesta þetta.

Hún segir rannsóknina á frumstigi og að mikil vinna sé framundan.