Í Lögbirtingablaðinu er birt stefna þar sem krafist er ógildingar á skuldabréfi þar sem frumrit þess sé glatað. Það væri kannski ekki í frásögur færandi nema vegna þess að skuldabréfið hljóðar upp á 133 milljónir króna og er með 42,5 prósent vöxtum á ársgrundvelli, sem verður að teljast ansi hátt, og raunar enn hærri dráttarvöxtum. Bréfið er í vanskilum og er tryggt með veðrétti í nokkrum fjölda fasteigna sem eigandi skuldabréfsins hefur krafist nauðungaruppboðs á. Lántakinn er félag í eigu umdeilds athafnamanns sem oft hefur ratað í fréttirnar og allar fasteignirnar eru í eigu félaga í hans eigu.
Málið til ógildingar skuldabréfsins er höfðað af Lundi fasteignafélagi. Félagið gaf skuldabréfið út í júní árið 2024 til fyrirtækisins V63 ehf. Síðarnefnda félagið, þ.e. lántakinn, er í eigu athafnamannsins Sverris Einars Eiríkssonar. Viðskiptaferill hans hefur verið stormasamur og sum fyrirtækja hans orðið gjaldþrota. Sverrir Einar hefur komist í kast við lögin m.a. vegna skattamála en hann hefur einnig deilt á yfirvöld og sagt sig hafa verið beittan órétti.
Sjá einnig: Um 157 milljón króna gjaldþrot hjá fasteignafélagi Sverris Einars
Sjá einnig: Sverrir Einar ákærður fyrir brot í rekstri fjögurra félaga – Segist hafa verið beittur ólöglegum aðgerðum
Sverrir Einar Eiríksson
Vaxtakjör
Í stefnu til ógildingar á veðskuldabréfinu segir að það sé að fjárhæð 133.000.000 króna og hafi átt að greiðast upp með tveimur afborgunum, einni á ári til tveggja ára. Veðskuldabréfið hafi borið 42,5 prósent vexti á ársgrundvelli, við vanskil beri veðskuldabréfið 45 prósent dráttarvexti.
Fram kemur í stefnunni að skuldabréfið sé í vanskilum frá og með fyrstu greiðslu sem þýðir þá væntanlega að það hefur aldrei verið greitt af því. Segir enn fremur að frumrit bréfsins sé glatað og hafi ekki fundist þrátt fyrir ítarlega leit. Stefnandi, þ.e. Lundur Fasteignafélag, hafi krafist nauðungarsölu á þeim fasteignum sem bréfið er tryggt með veði í, til fullnustu kröfunni, og því sé brýnt að fá veðskuldabréfið ógilt með dómi.
Grímsnes
Fasteignirnar sem um ræðir eru alls sjö talsins. Fimm þeirra eru í Grímsnes- og Grafningshreppi. Sú fyrstnefnda er fyrrverandi heimavistarskóli, Ljósafosskóli, þar sem nú er rekið gistiheimili en eigandi eignarinnar er félagið Gospel Channel Evrópa ehf. sem er að fullu í eigu Sverris Einars. Í fyrirtækjaskrá er félagið skráð í atvinnugreinaflokkinn önnur þjónustustarfsemi á sviði upplýsingatækni. Skuldabréfið er tryggt með 6. veðrétti í Ljósafosskóla.
Síðan er um að ræða 4 lóðir í Grímsnes- og Grafningshreppi allar í Þrastarlundi en eigandi þeirra er áðurnefnt félag Sverris Einars V63 ehf, Bréfið er tryggt með 5. veðrétti í lóðunum.
Einnig er bréfið tryggt með 6.veðrétti í atvinnuhúsnæði við Vatnsnesveg 5 í Reykjanesbæ en eigandi þess er félag sem er samnefnt húsinu. Félagið er að fullu í eigu Sverris Einars.
Loks er bréfið tryggt með 3. veðrétti í Skipholti 27 í Reykjavík. Þar eru ýmis fyrirtæki Sverris Einars með starfsemi sína m.a. Nýja Vínbúðin. Skipholt 27 er í eigu félagsins SG8 ehf. sem er í eigu Sverris Einars.
Öll þau félög Sverris Einars sem eiga umræddar eignir eru skráð ýmist með heimilisfang eða póstfang í Skipholti 27.
Eins og áður segir hefur verið krafist nauðungarsölu á öllum eignunum og þess vegna er með stefnunni krafist ógildingar á skuldabréfinu, þar sem frumritið er glatað. Ógildingarmálið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í næsta mánuði og er í stefnunni hverjum þeim sem kann að hafa frumritið undir höndum eða telur sig eiga rétt til bréfsins stefnt fyrir dóminn.