Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri SVEIT, segir mörg dæmi um hægagang í stjórnsýslu Reykjavíkurborgar þegar kemur að opnun reksturs, dæmi séu um að menn hafi beðið í heilt ár eftir að fá að opna pylsusjoppu.
Hildur ætlar að senda Ottó línu
Ottó Magnússon matreiðslumaður vakti athygli á seinagangi sem hann mætti við að færa veitingastaðinn Reykjavík Fish af Tryggvagötu og yfir á Vesturgötu, í húsnæði þar sem kaffihúsið Cafe Rosenberg var staðsett. Beindi hann orðum sínum að Hildi Björnsdóttur borgarstjóra í færslu á Facebook.
„Hér sitjum við félagar á veitingastað sem var tilbúinn í maí. Við vorum byrjaðir að sækja um leyfi í apríl. Horfum upp á fólk labba fram hjá lokuðum dyrum hjá okkur á miðju sumri og starfsfólkið sem við vorum búnir að lofa vinnu er á atvinnuleysisbótum hjá þér,“ segir Ottó.
„Kannski er enn lokað af því að Gamli maðurinn sem býr á efri hæðinni sem þekkir þig eða sendi inn til byggingarfulltrúa skáldað kvörtunarbréf. Hér var veitingastaður fyrir og hefur verið í mörg ár, við fórum hér inn í góðri trú, þar sem engu var breytt í húsinu, nema skrúfaðar heilar 4 skrúfur af lengri gerðinni. Nú þegar höfum við borgað 8 milljónir í leigu og sér ekki fyrir endann á því. Byggingarfulltrúi og heilbrigðiseftirlit eru í sama húsi en tala ekki saman og ekki er hægt að ná í neinn til að fá svör. Var ekki verið að taka til hjá ykkur, vantar starfsfólk?“
Hildur brást við færslunni og sagði: „Ekki gott að heyra! Ég sendi þér línu og skoða málið!“
Hamborgarafabrikkan búin að bíða í allt sumar
Ottó vildi ekki mæta í Bítið á Bylgjunni þar sem málið væri í ferli en Einar mætti og sagði að Ottó hafi ráðið til sín götubitakónginn Róbert Aron Magnússon sem sé í góðri æfingu við að ræða við borgina, samkvæmt greiningu sem hann afhenti Hildi Björnsdóttur borgarstjóra í vikunni þá hafi 53 dagar af þessum 83 dögum verið óþarfir. „Þar sem þetta bíður bara,“ segir Einar.
Íbúar í húsinu hafi gert athugasemdir við breytingu á húsnæðinu úr kaffihúsi í veitingastað, segir Einar að þar hafi verið farið yfir strikið í lýsingum á að miklar breytingar yrðu gerðar á húsinu. „Eins og Ottó segir þá eru þetta fjórar skrúfur eða eitthvað.“ Málið strandar í raun á djúpsteikingarpotti. Samskiptin hafi mýkst við heilbrigðiseftirlitin eftir fund en í sumar sé hægagangurinn meira hjá byggingafulltrúa.
„Við erum með Hamborgarafabrikkuna sem er að reyna að opna í Brixton sem við þekkjum sem gamla Grillhúsið í Tryggvagötu. Þar er að opna Hamborgarafabrikka á hamborgarastaðahúsi. Það er ekkert sem á í raun að segja að þú þurfir að gera annað en að taka úr lás og hefja starfsemi. Þeir hafa beðið í allt sumar,“ segir Einar.
„Þráinn Freyr Vigfússon sem er Michelinkokkur, maður sem dregur að athygli fyrir framúrskarandi veitingamennsku í Reykjavík. Hann lenti í þessu með opnun á Sel.“
Hafi beðið í heilt ár
Veitingamenn hafi gefið Hildi Björnsdóttur borgarstjóra hveitibrauðsdaga til að koma sér í gang. „Það eru 78 dagar liðnir af þessum 100 sem þau töluðu um,“ segir Einar. „Við erum enn að bíða eftir nokkrum hlutum sem við viljum sjá eins og notkun á bílastæðum frekar en að vera með listasýningar og blómaker að losa þau og geta þá nýtt þau. Það er ekki það að það vanti bílastæði en það er óþarfi að vera með blómaker fyrir framan. Það er ekki farið ennþá og Sölvi á Laundromat fylgist með því fyrir mér.“
Þá sé dæmi um menn sem hafi beðið í heilt ár:
„Það sem kom síðan upp úr krafsinu í gær er að Víkingapylsur, sem rekur tvo matarvagna í Reykjavík, vildi opna fastan veitingastað ekki í matarvagni. Leigir á Laugavegi 54, kjallara, breytir honum þannig að það er hægt að opna fullkominn veitingastað samkvæmt kröfum allra sem geta gert kröfur. Sækja um að fá að reka sjoppu, upphitaðan mat, pulsur og hamborgara. Þeir keyptu fyrir einu og hálfu ári, breyta þessu á hálfu ári og sækja um fyrir ári síðan og fá svo neitun sem segir: Þið megið ekki opna veitingastað þarna. Þeir sendu til baka að þeir ætluðu ekki að opna veitingastað heldur sjoppu, að hita upp pulsur. Þeir vilja vera í föstu húsnæði því þetta er svo vinsælt og þeim vantar pláss til að selja boli með pulsunum. Þeir fá ekki að opna þetta og það er búið að taka þá eitt ár að fá leiðréttingu á þessu,“ segir Einar.
„Maður spyr sig, auðvitað er þetta stjórnvald og ég hef margítrekað síðan ég tók við þessu starfi að enginn er að biðja um afslátt af reglum eða neitt sem varðar heilbrigði gesta. Hvernig á ég þá að gera þetta?, spyr veitingamaðurinn oft. Bæði heilbrigðiseftirlitið og alla þessa aðila, þá er bara sagt: Heyrðu, við erum ekkert í því. Við erum ekkert að leiðbeina. Ég spyr þá, hvar er þá leiðbeiningin? Þetta er það sem við erum að glíma við.“
Ekki lækki þetta verðið á matnum. „Meira að segja lögreglan skilgreinir sig sem opinbera þjónustu.“