Fréttir

Hafdís Bára opnar sig um martröðina: „Ég var bara flutt í burtu og sett í einangrun”

Mynd
Hafdís Bára. Mynd/Sterk saman

Hafdís Bára Óskarsdóttir er 37 ára tveggja barna móðir og sveitastelpa. Hún er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Sterk saman.

Hafdís ólst upp í sveit með foreldrum og systkinum. Á unglingsárum flutti hún inn á Akureyri og stundaði nám við VMA. 

„Foreldrar okkar keyptu íbúð á Akureyri sem við systkinin bjuggum svo í þegar við vorum í námi, það borgaði sig frekar en að hafa okkur öll á vistinni, held ég.”

Hún kynntist fyrri manni sínum og eignaðist barn ung. Samband þeirra gekk ekki upp en eftir sambandsslitin urðu þau vinir.

„Hann og konan hans hafa hjálpað mér mikið í gegnum tíðina og samskiptin alltaf snúist um barnið sem við eigum saman. Jafnvel hafa þau stundum boðið yngri í gistingu þegar sem mest hefur gengið á, það er ómetanlegt.“

Hafdís fór eitt sinn á landsmót bifhjólamanna til að hitta góðan vin sinn.

„Ég hitti þennan seinni barnsföður minn á þessu landsmóti. Hann var sjarmerandi og spennandi, ég viðurkenni það alveg.“

Hann hafði áður fengið dóm fyrir brot gegn stúlkum á meðferðarheimilinu Árbót en í þættinum kemur fram að hann hafi náð að snúa því sér í vil og kennt neyslu og öðru slíku um.

Á þeim tíma hafði hann náð að krækja klóm sínum í Hafdísi, ef svo má að orði komast. Vinir og fjölskylda Hafdísar voru ekki miklir aðdáendur hans en hún var orðin föst í ofbeldissambandi.

Sjá einnig: Vopnafjarðarmálið: Jón Þór reyndi að koma sökinni á Hafdísi – „Hann hefur verið mjög duglegur sjálfur að rústa sínu mannorði“

„Ég var orðin svo einangruð og hann fylgdist með öllu sem ég gerði.“

Þau fóru einn daginn í bíltúr frá Akureyri til Vopnafjarðar að skoða jörð.

„Ég var orðin spennt fyrir því að komast aftur í sveit og vera með dýr. Þarna var ég ófrísk og við tókum ákvörðun um að flytja um haustið, þegar barnið væri aðeins búið að stækka og ég búin að jafna mig eftir fæðinguna.“

Hafdís gekk tvær vikur fram yfir og um leið og sonur þeirra kom í heiminn fór hann með þau austur.

„Ég var bara flutt í burtu og sett í einangrun í sveitinni fyrir utan Vopnafjörð. Hann fór í burtu að vinna og ég var ein með ungabarn, son minn og ekki búin að jafna mig eftir barnsburð.“

Ofbeldið versnaði bara. Hafdís segir frá því að hún hafi á einum tímapunkti gert allt sem hún gat til að vera leiðinleg í von um að hann færi sjálfviljugur. 

„Ég var orðin versta útgáfan af sjálfri mér.“

Hafdís segir að hluti ofbeldisins hafi verið andlegt en ekki síður líkamlegt en andlega ofbeldið sé það sem situr fastast í henni. Þá hafi hann aðeins verið dæmdur fyrir tilraunina til að drepa hana.

Hafdís lifði af mjög alvarlega tilraun til manndráps en hennar ofbeldismaður bjó í húsinu fyrir ofan hana og gat því fylgst með öllum hennar ferðum.

Sjá einnig: Ár liðið frá hryllingsárásinni á Hafdísi - „Þá mun ég alltaf sigra“

„Ég fékk auðvitað ekki nálgunarbann því hann var ekki búinn að gera neitt nógu alvarlegt fyrr en hann reyndi að drepa mig.“

Fyrrverandi sambýlismaður Hafdísar, Jón Þór Dagbjartsson, var dæmdur í sex ára fangelsi í héraðsdómi en Landsréttur þyngdi dóminn í sjö ár fyrr á þessu ári.

Hægt er að hlusta á viðtalið við Hafdísi á hlaðvarpsveitum eða hér að neðan.