Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði á mánudag forsetatilskipun sem felur í sér umfangsmiklar breytingar á ráðleggingum um bólusetningar barna í Bandaríkjunum.
Trump vill meðal annars að bólusetningum barna verði dreift yfir fleiri læknisheimsóknir og að samsettu MMR-bóluefni gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum verði skipt upp í þrjú aðskilin bóluefni.
Tillögurnar hafa vakið hörð viðbrögð lækna og sérfræðinga í lýðheilsumálum, að því er fram kemur í umfjöllun AP um málið.
Trump hefur lengi haldið því fram að betra sé að dreifa bólusetningum barna yfir lengri tíma. Sérfræðingar vara hins vegar við því að slíkt geti aukið hættuna á að börn smitist af sjúkdómum sem bóluefni verja gegn á meðan beðið er eftir næsta skammti.
Í tilskipuninni er heilbrigðisyfirvöldum jafnframt gert að leggja fram áætlun um að gera aðskilin bóluefni gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum aðgengileg. Slík bóluefni eru ekki í boði í Bandaríkjunum sem stendur.
Tengdi bólusetningar aftur við einhverfu
Trump ræddi tilskipunina á forsetaskrifstofu sinni á mánudag og gaf þar ítrekað í skyn að fjöldi bólusetninga eða tímasetning þeirra gæti átt þátt í fjölgun einhverfugreininga.
Áratuga rannsóknir hafa hins vegar ekki sýnt fram á tengsl milli bóluefna og einhverfu og ríkir víðtæk vísindaleg samstaða um það.
Dr. Andrew Racine, forseti Bandarísku barnalæknasamtakanna, gagnrýndi tilskipunina harðlega og sagði hana skapa óþarfa óvissu, ótta og rugling.
„Vísindin um bóluefni og virkni þeirra hafa ekki breyst,“ sagði Racine.
Hann benti á að möguleg tengsl bólusetninga og einhverfu hefðu verið rannsökuð í meira en 40 vönduðum rannsóknum í sjö löndum sem náðu samtals til meira en fimm milljóna barna.
„Ég er ekki viss um að nokkur spurning hafi verið rannsökuð jafn ítarlega og þessi. Og svarið er ótvírætt nei.“
Repúblikani segir Trump hafa rangt fyrir sér
Gagnrýnin kemur ekki aðeins frá læknasamtökum. Bill Cassidy, öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins og formaður heilbrigðismálanefndar öldungadeildarinnar, tók einnig afdráttarlausa afstöðu gegn forsetanum.
„Ég er læknir. Þessi forsetatilskipun er röng,“ skrifaði Cassidy á samfélagsmiðlum. „Forsetinn hefur ekki þá sérþekkingu sem þarf til að gera þessar breytingar.“
Trump fagnaði tilskipuninni hins vegar og kallaði hana „stórsigur fyrir réttindi foreldra, trúfrelsi og stjórnarskrárbundin réttindi, sem og fyrir vísindi á hæsta gæðastaðli“.
Robert F. Kennedy yngri, heilbrigðisráðherra Trumps, hefur þegar ráðist í miklar breytingar á bólusetningarstefnu bandarískra stjórnvalda. Hann rak meðal annars alla 17 fulltrúa í ráðgjafarnefnd um bóluefni og skipaði nýja í þeirra stað. Hluti breytinganna sem fylgdu í kjölfarið hefur verið stöðvaður af alríkisdómara.
Forsetatilskipunin kemur á viðkvæmum tíma, að því er segir í frétt AP. Mislingafaraldur geisar í Bandaríkjunum og sérfræðingar hafa varað við því að landið gæti misst þá formlegu stöðu að mislingum hafi verið útrýmt þar.
Á sama tíma hefur bólusetningarhlutfall bandarískra barna farið lækkandi og hlutfall barna sem fengu undanþágu frá bólusetningum náði sögulegu hámarki skólaárið 2024–2025.