Fréttir

Sótti barnið til Portúgals eftir að móðirin flutti þangað með það í heimildarleysi

Mynd

Portúgalskri móður ungs barns hefur verið stefnt fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur af föður barnsins sem krefst þess að honum einum verði falin forsjá og lögheimili barnsins. Til vara krefst hann þess að honum verði falið lögheimili barnsins en forsjá þess verði áfram sameiginleg.

Hann krefst þess jafnframt að héraðsdómur úrskurði til bráðabirgða að lögheimili barnsins og forsjá þess verði hjá hjá honum frá uppkvaðningu úrskurðar og þar til dómur verður kveðinn upp í málinu.

Foreldrarnir sem bæði eru frá Portúgal voru í skráðri sambúð er barn þeirra, sem er í dag nokkurra ára gamalt, fæddist hér á landi. Í júní árið 2024 lauk sambandinu án þess að það væri formlega skráð hjá sýslumanni, að því er faðirinn staðhæfir í stefnu sinni. Eftir það voru málsaðilar öll áfram með sameiginlegt lögheimili. Í kjölfar sambúðarslitanna flutti móðirin með barnið til Portúgals í leyfisleysi og án samþykkis föðurins því ekki hafði verið gengið frá neinu eins og barnalög krefjast, er ennfremur staðhæft í stefnunni. 

Lendir í erfiðleikum með leikskóla og heilbrigðisþjónustu

Í september sama ár sótti faðirinn barnið til Portúgals og hefur það síðan þá búið hjá honum á Íslandi. Í stefnunni segir: „Eftir að stefnda flutti til Portúgal í september 2024 hefur hún þrátt fyrir þetta ekki lagt neitt til framfærslu barnsins. Stefnandi hefur einn borið alla ábyrgð á og staðið straum af uppeldi, framfærslu og útgjöldum barnsins frá þeim tíma og gerir enn.“

Kerfið horfir ekki til þess að móðirin er ekki lengur með lögheimili sitt á Íslandi þar sem ekki var gengið frá forsjá og lögheimili barnsins við sambúðarslitin. Lagalega er litið svo á að konan og maðurinn séu enn í sambúð hér á landi og segist faðirinn hafa lent af þeim sökum í erfiðleikum við mikilvæga ákvarðanatöku, t.d. varðandi leikskólagöngu og heilbrigðisþjónustu barnsins. „Er það mat stefnanda að það sé útilokað að forsendur séu fyrir sameiginlegri forsjá í ljósi þess að stefnda býr í öðru landi auk þess sem hún skiptir sér ekkert af barninu og hefur ekki gert í nærri tvö ár,“ segir í stefnunni. 

Faðirinn segist ítrekað hafa reynt að eiga samskipti við barnsmóður sína til að ganga formlega frá sambúðarslitum þeirra en hún hafi neitað því og einnig neitað að taka þátt í framfærslu barnsins. Hann hefur leitað til sýslumanns til að fá úrlausn í málinu en án árangurs. „Sýslumaður gaf út vottorð um að sættir hafi ekki tekist milli aðila hinn 18. febrúar 2026, enda náðist ekkert samband við stefndu þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir sáttamanna en tveir sáttamenn komu að málinu.ׅ“

Segir faðirinn að móðir barnsins hafi lýst afstöðu sinni í málinu með þögninni einni. Hún hafi þó komið einu sinni til landsins til að hitta barnið í þrjá daga auk þess sem faðirinn fór með barnið til Portúgals til að hitta hana sumarið 2025. Segir að fyrir utan þessi tvö tilvik hafi móðirin hvorki hitt barnið né reynt að hafa samskipti við það. 

„Réttarstaða stefnanda og barnsins hér á landi er því eins og málsaðilar séu enn í sambúð með þeim vandkvæðum sem að framan er rakið. Barnið á sannarlega lögheimili á sama stað og stefnandi og málsaðilar með sameiginlega forsjá eins og sakir standa en hvorugt foreldrið er skráð lögheimilisforeldri barnsins,“ segir í stefnunni. 

Segir barninu fyrir bestu að hann fari með forsjána

Faðirinn bendir á að barnið hafi búið hjá honum síðan í september 2024 og hafi aðlagast vel hér á landi. Aðstæður föðurins séu góðar, barninu gangi vel í leikskóla og eigi sterkt stuðningsnet hjá föðurnum og fjölskyldu hans. Einnig séu daglegar venjur barnsins í föstum skorðum. 

„Með því að dæma stefnanda forsjá barnsins og lögheimili eða lögheimili og gera stefndu að greiða meðlag með barninu, telur stefnandi unnt verði að tryggja enn frekar en hingað til stöðugleika barnsins, hag þess og öryggi í víðum skilningi,“ segir í stefnunni. 

Ekki hefur tekist að birta móðurinni stefnuna í Portúgal og er hún því birt í Lögbirtingablaðinu. Þar er móðurinni birt fyrirkall um að mæta við þingfestingu málsins síðar á árinu, í Héraðsdóm Reykjavíkur. Mæti hún ekki má hún búast við að útivistardómur geti gengið í málinu í samræmi við kröfur föðurins.