Rússneskt par hefur verið handtekið í Svíþjóð eftir að grunur vaknaði um að það hafi ætlað sér að njósna um forstjóra vopna- og hergagnaframleiðandans Saab. Lögmaður parsins segir þau einungis hafa verið í útilegu og hafa orðið að skotmarki yfirvalda vegna þjóðernis síns.
Fjallað hefur verið um málið í bæði Aftonbladet og sænska ríkissjónvarpinu, SVT.
Parið, Tatjana Milenina og Semjon Rusanov, var handtekið síðastliðinn fimmtudag en þau höfðu tjaldað í nágrenni borgarinnar Gävle, sem er í Gävleborg-héraði og um 140 kílómetra norður af Stokkhólmi.
Milenina og Rusanov tjölduðu nærri húsi sem eru í eigu ættingja Micael Johansson forstjóra Saab en Johansson er sagður dvelja reglulega í húsinu.
Öryggisverðir, sem gæta öryggis Johansson, fylltust grunsemdum þegar Milenina fór inn á landareign þessa ættingja Johansson, gaf sig á tal við þá og óskaði eftir því að hún og unnusti hennar fengju leyfi til að veiða fisk á bryggju sem tilheyrir eigninni. Það leyfi var ekki veitt. Öryggisverðirnir kröfðu í kjölfarið parið um skýringar á veru sinni á svæðinu og kölluðu loks til lögreglu sem handtók þau og flutti á varðhaldsstöð ætlaða föru- og flóttafólki.
Saab
Saab staðfestir við Aftonbladet að Johansson hafi verið á svæðinu þegar öryggisverðir hans urðu parsins varir.
Segir í skriflegu svari Saab að fyrirtækið sé stöðugt að vinna að því að verjast alls kyns ógnum en hvernig það sé gert verði ekki rætt opinberlega.
Forstjórinn segir að vegna þessu hvers mikilvæg starfsemi fyrirtækisins sé fyrir sænskar varnir og hergagnaframleiðslu hafi verið talið nauðsynlegt að hans væri gætt af öryggisvörðum.
Vörumerkið Saab tengja þó líklega margir fremur við bílaframleiðslu fyrirtækisins en sá hluti starfseminnar var fyrst í sérstöku dótturfélagi sem varð síðan sjálfstætt fyrirtæki. Bílaframleiðslan gekk síðan í gegnum ýmsar breytingar á eignarhaldi en á endanum varð félagið gjaldþrota og hætti starfsemi árið 2016.
Talstöð
Það var þó ekki eingöngu þjóðerni parsins sem fyllti öryggisverðina og lögregluna grun um að þau væru þangað komin til að njósna um forstjóra hergagnaframleiðandans heldur einnig það að þau voru með talstöð í fórum sínum.
Milenina og Rusanov segja hins vegar að talstöðin hafi aðeins verið hugsuð til þess að þau hefðu annað samskiptatæki upp á að hlaupa ef farsímar þeirra yrðu rafmagnslausir.
Lögmaður þeirra segir þau hafa að undanförnu farið í útilegu víðsvegar um Svíþjóð. Þau hafi ekki haft hugmynd um að umrædd landareign tengdist forstjóra Saab.
Milenina og Rusanov hafa ekki búið í Rússlandi síðan 2021. Þau eru með dvalarleyfi á Spáni en standa nú frammi fyrir þeim möguleika að það verði afturkallað.
Stríðið
Parið hefur tjáð SVT að þau hafi ekki komið til heimalands síns síðan árið 2022 og eigi þar yfir höfði sér refsingu fyrir að mótmæla stríðsrekstrinum í Úkraínu.
Lögmaður þeirra segir engar forsendur fyrir því að svipta þau dvalarleyfinu á Spáni eða refsa þeim í Svíþjóð. Það eina sem þau hafi gert hafi verið að tjalda á röngum stað.
Það að hafa þau í haldi sé eingöngu byggt á talstöðinni og því að þau séu rússnesk sem sé ekki fullnægjandi ástæða. Það sé ekki glæpur að tjalda og tala rússnesku.
Í svari við fyrirspurn Aftonbladet vísar lögreglan þó til þess að parið hefði verið handtekið vegna gruns um að þau, sem rússneskir borgarar, hefðu ekki leyfi til að dvelja í Svíþjóð. Kom einnig fram í svarinu að málið snerist einnig um grun um heimilisofbeldi og þjófnað.