„Við getum staðfest að búið sé að bera kennsl á viðkomandi,“ segir Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í stuttu samtali við DV, um líkfundinn við Austurbæjarskóla í dag.
Vegfarandi kom þar að látnum manni og hafði samband við lögreglu, en þetta átti sér stað rétt fyrir kl. 13 í dag. Ekki er talið að lát mannsins hafi borið að með saknæmum hætti.
Aðspurður hvort maðurinn væri útlendingur eða Íslendingur sagði Unnar: „Við viljum ekki gefa það upp eins og er. Það er ennþá verið að vinna í aðstandendum, sé ég.“
Unnar sagðist einnig ekki geta veitt upplýsingar um aldur mannsins, „af tillitssemi við aðstandendur,“ það væri ekki hægt fyrr en náðst hefði samband við þá.
Ennfremur liggur ekki fyrir hvort maðurinn hafði tengsl við Austurbæjarskóla.