Fréttir

Líkfundur við Austurbæjarskóla

Mynd

Maður fannst látinn við Austurbæjarskóla rétt fyrir kl. 13 í dag. 

Mbl.is greinir frá. 

Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunn á höfuðborgarsvæðinu, segir að vegfarandi hafi komið að manninum látnum og haft samband við lögreglu. 

Rannsókn málsins er á frumstigi en ekki er talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. 

Ekki er talið að börn hafi verið á svæðinu en sumarfrí eru í grunnskólum landsins. 

Ennfremur liggur ekki fyrir hvort maðurinn hafði tengsl við skólann.