Fréttir

Framkoma flokksformanns í Silfrinu harðlega gagnrýnd: „Fyrir alla muni ekki láta eins og Sigmundur sé að segja eitthvað af viti“

Mynd

Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi, Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Inga Sæland, Guðrún Hafsteinsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Lilja Alfreðsdóttir, mættust í Silfrinu á RÚV í beinni útsendingu í gærkvöldi. Um var að ræða fyrsta þáttinn eftir sumarleyfi og tók Bergsteinn Sigurðsson á móti gestunum og stýrði umræðum.

Hann beindi fyrstu tveimur spurningum til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra og þeirri þriðju til Guðrúnar Hafsteinsdóttur formanns Sjálfstæðisflokksins.Lýstu þær ólíkri upplifun af sumrinu og afstöðu fólks til komandi þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst um áframhaldandi viðræður við ESB.

„Þjóðin er gjörsamlega klofin í herðar niður“, sagði Guðrún, sem hún sagði andstætt við markmið ríkisstjórnarinnar að vilja ekki sundra þjóðinni. Sagði hún að fjölskyldur gætu ekki hist lengur vegna rifrildis um já eða nei.

„Það eru verðmæti í þessari umræðu fyrir okkur sem þjóð þrátt fyrir hávaða“, sagði Þorgerður formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra. 

Næstur tók Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins til máls, Inga Sæland formaður Flokks fólksins og mennta- og barnamálaráðherra, og að lokum Lilja Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins.

„Mér er sagt að ég eigi ekki að vera pirraður yfir þessu, þó ég hafi horft upp á þetta áður, ég hef horft á allt þetta leikrit áður“, sagði Sigmundur. 

Ítrekuð frammíköll Sigmundar hófust á 14 mínútu þegar Inga var með orðið

Byrjaði hann frammíköllin þegar Inga tók til máls og tók margítekað fram í þar til Inga spurði hvort hún fengi að tala. Guðrún tók einnig fram í einu sinni. Eftir að allir höfðu fengið að svara einu sinni var komið aftur að Kristrúnu, og síðan Lilju. Sigmundur hélt frammíköllum áfram hjá Lilju, sem spurði hvort hún fengi að klára. Sigmundur virtist síðan vilja taka að sér þáttastjórnina og spurði Bergsteinn blaðamann RÚV hvort hann ætlaði ekki að spyrja ríkisstjórnina, þær Kristrúnu, Ingu og Þorgerði, hvað væri í boði ef að já yrði niðurstaðan í þjóðaratkvæðagreiðslunni.

Guðrún og Inga tókust nokkuð á þar sem Guðrún kallaði eftir skýru svari frá Ingu um hvort sú síðarnefnda ætlaði að kjósa já eða nei. 

Þegar þátturinn var rúmlega hálfnaður skólaði Þorgerður Sigmund til og sagði að það besta sem hann gæti gert væri að hlusta. „Sigmundur Davíð, ég held að það besta sem þú gætir gert væri að kynna þér Hvað viltu vita?“ og lyfti upp upplýsingabæklingi frá Landskjörstjórn sem borinn hefur verið á öll heimili. „Það væri frábært ef maður fengi að komast að, viltu róa þig aðeins minn kæri.“ “Sigmundur leyfðu konunni að tala“, sagði Kristrún.

Frammíköll formanns Miðflokksins héldu ítrekað áfram út þáttinn sem var klukkustund að lengd.

Segja Sigmund Davíð hafa vaðið uppi með frammíköllum og frekju

Það er ljóst að framkoma formanns Miðflokksins stendur upp úr þegar færslur á samfélagsmiðlum eru skoðaðar. Þar er talað um að Sigmundur Davíð hafi fengið að vaða uppi með frammíköllum án þess að þáttastjórnandi brygðist við. 

„Það var hálf dapurlegt að horfa á Silfrið. Þáttarstjórnunin hvarf nánast og Sigmundur Davíð fékk allt að því ótakmarkað pláss til að vaða uppi og grípa stöðugt fram í með gjammi, án þess að gengið var á milli. Þegar pólitískir spjallþættir verða svona stjórnlausir og einstaka viðmælendur fá að vaða yfir alla án aðhalds, þá tapar áhorfandinn“, segir Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir þingmaður Flokks fólksins.

Mynd
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir þingmaður Flokks fólksins.

„Það er stórmóðgun við þjóðina og heiti þáttarins að bjóða manni Sigmund Davíð sem sjónvarpsefni. Hann er óendanlega vont sjónvarpsefni. Ef RÚV ætlar áfram að bjóða okkur Silfrið með þessu fyrirkomulagi þurfa stjórnendur að hafa myndugleik til að hafa hemil á dónum sem tala sífellt oní aðra þáttakendur og fyrir alla muni ekki láta eins og td Sigmundur sé að segja eitthvað að viti“, segir Stefán Benediktsson arkitekt og fyrrum þingmaður.

Mynd
Stefán Benediktsson arkitekt og fyrrum þingmaður.

„Hafandi horft à Silfrið nú ,þà verð ég að segja að það er ekki hægt að hafa Sigmund Davið innan um fólk,hann bara kann sig ekki.Að öðru leiti fannst mér þetta góður þàttur fyrir þà, sem kannski hafa verið óàkveðnir.það fer að verða óboðlegt fyrir folk,sem kann mannasiði,að vera i svona þætti þar sem Sigmundur er“, segir Edvard Skúlason. „Mèr fannst nú ekkert nýtt koma frà Guðrúnu, nema þà kannski þegar hún upplýsti að nàgranni hennar væri giftur,þetta hafði ég ekki hugmynd um.“

Mynd
Sigmundur Davíð í Silfrinu.

Tónlistarmaðurinn Jón Ólafsson horfði ekki á þáttinn og leggur til að hafa einfaldlega dómara: „Ekki sá ég Silfrið í kvöld en skv. fésbókarfólki fór einn leikmaður ekki eftir almennum reglum um kurteisi. Hvað með að hafa dómara í svona þáttum með gul og rauð spjöld? Ef þú grípur frammi í einu sinni færðu aðvörun. Í annað sinn er það gult spjald og svo rautt spjald ef gripið er fram í þrisvar sinnum. Game over!“

Mynd
Jón Ólafsson.

Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar horfði ekki heldur á þáttinn, en valdi að skrifa færslu með lyndistákninu að hann væri þakklátur fyrir það. „ Marked my self safe from both Silfrið and the Club formally known as Nasa.“

Mynd
Grímur Atlason.

Hanna Björg Vilhjálmsdóttir kynjafræðikennari segir að erfitt hafi verið að horfa á þáttinn og kallar hún eftir málefnalegri orðræðu frá Nei sinnum:

„Fyrsta vangaveltan er, var SD með kynjakvóta að tala jafn mikið og allar konurnar til samans? Án athugasemda frá þáttastjórnanda. Konur voru kurteisar eins og kvenna er uppálagt að vera. SD tók yfir stjórnina á þættinum á löngum köflum – fékk að grípa frammí og trufla eins og hann lysti. Á sama tíma og stjórnarandstaðan ítrekaði að ríkisstjórnin væri að kljúfa þjóðina með því að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu (sem er þversögn) þá göluðu þau og hjuggu endalaust í klofning með orðræðu sinni. Með ólíkindum hvað stjórnmálafólk getur boðið almenningi uppá.

Vissulega er ég stuðningskona ríkisstjórnarinnar. Ég er líka vinstra megin við allar þrjár forystukonur þessarar ríkisstjórnar. En málflutningur stjórnarandstöðunnar var svo ómálefnalegur að engu tali tekur. Afvegaleiðing og hreinlega gaslýsing var einkennandi fyrir orðræðu þeirra stjórnarandstæðinga. Til að útskýra hvað gaslýsing er þá er það þegar reynt er að halda fram lygi á markvissan hátt þannig að fólk fari að efast um eigin raunveruleika. Auðvitað tókst stjórnarandstöðunni þetta ekki í Silfrinu – en þau reyndu mikið.

Kosningarnar nú í ágúst snúast ekki um inngöngu heldur samingaviðræður. Við myndum ekki að gefa eftir fullveldið með inngöngu í ESB. Við vitum ekki hvaða samning við fáum. Öllu þessu var snúið á hvolf af stjórnarandstöðunni í kvöld. Ég kalla eftir málefnalegri orðræðu frá Nei sinnum.“

Mynd
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir.

Björn Birgisson, grindvíkingur og samfélagsrýnir spyr hvaða gagn þjóðin hafi af framkomu Sigmundar Davíðs:

„Hann Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kann enga mannasiði og RÚV ætti að hætta að bjóða honum í svona umræðuþætti. Þvílíkur dónaskapur sem alltaf er í kring um hann og flokk hans, formanninn og flokkinn sem enginn vill vinna með. Hvaða gagn hefur þjóðin af þessum trúðslátum og dónaskap? Nákvæmlega ekkert og það er ekki til neins að kjósa Miðflokkinn. Öll þau atkvæði verða ígildi dauðra atkvæða.“

Mynd
Björn Birgisson.

Ingimar Skúli Sævarsson leiðsögumaður gaf formönnum flokkanna einkunn eftir frammistöðu þeirra: 

„Eg var að horfa á Silfrið hér áðan og get ekki orða bundist yfir framkomu stjórnarandstæðinganna og þar fremst í flokki Sigmundur Davíð, hann lét eins og hann væri að keppa í Morfís en ekki sem formaður stjórnarandstöðuflokks sem vil fá að taka sig alvarlega, hann greip margsinnis frammi og lét eins og hann ætti einn að vera í viðtali, hann endurtók aftur og aftur sömu möntrurnar í þeirri trú að því oftar sem einhver vitleysan er endurtekin oftar endar það með því að sumt fólk fer að trúa vitleysunni, en snérist svo í andhverfu sína þegar hann var spurður hvort orð hans Frá 2008 um að við Íslendingar gætum örugglega fengið sérmeðferð í sjávarútvegsmálum þá byrjaði hann að snúa útúr og í stað þess að svara baunaði hann ýmsum ómarkvissum spurningum til Ingu Sæland og hinna.“ 

Og einkunnagjöfin: „Þorgerður og Inga fá báðar 10 fyrir framkomu sína í kvöld, Kristrún fær 9 vegna þess að hún hefði getað verið meira afgerandi, Guðrún fær 8 fyrir að halda sig við efnið og vera málefnaleg, Lilja fær 4 en bara vegna þess að hún sagði eiginlega ekkert af viti og kom svo miklu betur fram en Sigmundur sem var fíllinn í stofunni, dónalegur með frammíköll og þvældist bara fyrir umræðunni fær -1 í einkunn en hefði sloppið sloppið með hærri einkunn með því að mæta ekki.“

Horfa má á þáttinn hér.