Fréttir

Ása svarar Stefáni - Þetta er ástæða þess að hún vill ekki mæta til hans

Mynd

Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur verið iðin við það undanfarið að birta myndbönd á Facebook-síðu sinni þar sem hún fer yfir ýmis álitaefni og spurningar um komandi Þjóðaratkvæðagreiðslu og ESB.

Nýjasta myndbandið birti hún í gær með yfirskriftinni: „Af hverju vill Sjálfstæðsflokkurinn ekki ræða um krónukostnaðinn?“

Að vanda vakti myndbandið viðbrögð og hafa 716 líkað við það, 79 deilt og 83 athugasemdir verið skrifaðar þegar þetta er skrifað. Einn þeirra sem skrifa athugasemd er Stefán Einar Stefánsson blaðamaður á Morgunblaðinu og umsjónarmaður Spursmála. Spyr hann Ásu:

„Af hverju vilt þú ekki ræða við mig? Er það ekki lélegt í ljósi þess að þú ert þjóðkjörinn fulltrúi og lætur mjög til þín taka um þetta tiltekna málefni?“

Ása svarar honum og útskýrir af hverju hún vill ekki mæta í Spursmál:

„Af því þú spyrð opinberlega skal ég svara opinberlega. Ég lít ekki á þáttinn þinn sem hefðbundinn fjölmiðil heldur sem pólitískan málflutningsvettvang. Þú hefur fullan rétt á að reka slíkan vettvang og ég hef fullan rétt á að kjósa að taka ekki þátt í honum.

„Að vera kjörinn fulltrúi felur í sér skyldu til að svara fyrir mín sjónarmið og mín störf. Það felur ekki í sér skyldu til að mæta í hvern þann þátt sem kallar eftir nærveru minni.“