„Mér fannst þetta bara ótrúlega sætt og svona smá áminning um að náungakærleikur er ennþá til,” segir María Þórs sem skrifaði skemmtilega færslu í Facebook-hópinn Íbúar Hafnarfjarðar í gærkvöldi.
María deildi þar myndum af bréfi sem skilið var eftir á fjölskyldubílnum, en umræddur bíll bilaði fyrir um mánuði og hefur staðið á bílastæðinu við Óla Rún tún í suðurbæ Hafnarfjarðar síðan þá.
Í bréfinu stóð eftirfarandi texti, bæði á íslensku og ensku:
„Kæri nágranni,
Ég vildi bara láta þig vita, (ef ske kynni að þú hafir ekki tekið eftir því) að skynjari undir bílnum þínum er laus. Ég á samskonar bíl og lenti í erfiðleikum og talsverðum kostnaði þegar að sama stykki datt niður úr mínum bíl og vil gjarnan hlífa þér við þeim kostnaði! Endilega láttu kíkja á þetta og festa betur upp.”
María segir í færslunni sem hún skrifaði í hópinn að hún hafi ekki hugmynd um hver skildi miðann eftir en hana langi einfaldlega að segja takk.
„Við vissum af þessu sem stendur í bréfinu, en okkur fannst samt ótrúlega fallegt að þau hafi séð bílinn, áttað sig á þessu og hugsað út í að vara okkur við svo við myndum ekki lenda í sama veseni og kostnaði og þau höfðu sjálf lent í,” segir María sem veitti DV góðfúslegt leyfi til að birta myndir af bréfinu.
„Og ekki nóg með það heldur skrifuðu þau bréfið bæði á íslensku og ensku, ef við skyldum ekki tala íslensku, og settu það svo í plastpoka svo það myndi ekki blotna í rigningunni,“ segir María. Hún bætir við að viðkomandi hafi ekki þurft að hafa fyrir þessu til að spara einhverjum ókunnugum pening og vesen.
„Svo takk kærlega, hver sem þið eruð,” segir María. „Og afsakið innilega með að bíllinn sé búinn að vera þarna í rúman mánuð. Hann verður loksins farinn í vikunni þegar hann fer á verkstæði.”