Fréttir

Helga Lára aðstoðar borgarstjóra

Mynd
Helga Lára Haarde. Mynd: Attentus.is

Helga Lára Haarde verður aðstoðarmaður Hildar Björnsdóttur borgarstjóra.

Helga kemur frá ráðgjafafyrirtækinu Attentus þar sem hún hefur starfað undanfarin tæp tíu ár sem ráðgjafi í mannauðsmálum og klínískur sálfræðingur. Þar áður vann Helga hjá Maskínu við gerð viðhorfskannana. Helga er menntaður klínískur sálfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík. 

Helga hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn gegnum árin og var kosningastjóri fyrir flokkinn í borgarstjórnarkosningunum síðastliðið vor. 

Helga hefur störf á skrifstofu borgarstjóra á næstu vikum.

Helga er fædd árið 1984, dóttir Ingu Jónu Þórðardóttur, viðskiptafræðings og fyrrum borgarfulltrúa, og Geir H. Haarde, fyrrum alþingismanns, fjármálaráðherra, utanríkisráðherra og forsætisráðherra.