Fréttir

Svara Ólafi Ragnari: „Gróflega villandi og auðvitað beinlínis rangt“

Mynd
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Eiríkur Rögnvaldsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Dagur B. Eggertsson og Illugi Jökulsson. Samsett mynd/Brotkast

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, gagnrýnir þá sem ætla að segja já í atkvæðagreiðslunni 29. ágúst næstkomandi, sagði hann í viðtali í Spjallinu með Frosta Logasyni að engin formleg eða lagaleg trygging fyrir því að fari svo að aðildarviðræður yrðu teknar upp og að út úr þeim komi aðildarsamningur að slíkur samningur yrði þá lagður fyrir þjóðina, til samþykktar eða synjunar. 

Sjá einnig: Ólafur Ragnar: „Það er það sem þú segir“

Margir hafa stigið fram og gagnrýnt ummæli Ólafs Ragnars, þar á meðal Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sem segir:

„Ég hef fagnað því að allir taki þátt í Evrópuumræðunni - en þetta innlegg Ólafs Ragnars gengur ekki, því miður. Ég vona að þetta sé ekki rétt eftir Ólafi Ragnari haft - því ef svo er þá er þetta gróflega villandi og auðvitað beinlínis rangt (svo ekki séu notuð stærri orð) og tilraun til að grafa undan því sem Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa sagt skýrt frá upphafi. Að samningur verði borinn undir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu,“ segir Dagur í færslu á Facebook.

„Reyndar þarf ekki að vitna til ráðherra í því. Í þingsályktunartillögunni frá því í vor, um þjóðaratkvæðagreiðsluna sem fram fer síðar í þessum mánuði kemur hið sama skýrt fram í upphafi greinargerðar.“

Ómerkilegt stönt segir Illugi

Rithöfundurinn Illugi Jökulsson segir þetta lágkúrulegt: „Auðvitað veit hann jafn vel og ég að það eru ekki minnstu líkur, nei, bara alls engar líkur á því að ríkisstjórnin reyni að sleppa við aðra þjóðaratkvæðagreiðslu ef samningar nást við Evrópusambandið,“ segir Illugi. 

„Þessi fyrrverandi forseti Íslands, þessi þrautreyndi stjórnmálamaður og sprenglærði fræðimaður á sviði stjórnmálamaður, hann er sem sé bara að reyna að hræra í þeim sem hann telur að viti ekki betur en muni láta blekkjast. Þótt Ólafur Ragnar hafi gert ýmsar furður um ævina, þá hélt ég ekki að hann ætti til svona ómerkilegt stönt.“

Yfirlýsingin eins og kosningaloforð

Það eru þó ekki allir á sama máli, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins, segir þetta rétt hjá Ólafi Ragnari.

„Það að fram fari önnur atkvæðagreiðsla er bara yfirlýsing þeirra stjórnmálamanna sem hana gefa. Eins konar kosningaloforð eins og þau sem sömu stjórnmálamenn gáfu fyrir þingkosningar, „engar skattahækkanir”, „ESB ekki á dagskrá” osfrv.,“ segir Sigmundur Davíð.

Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus, segir staðhæfingu Ólafs Ragnars skrítna:

„Ef svo ólíklega færi að ríkisstjórn og Alþingi svikju hátíðleg loforð um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um samninginn sjálfan hefur þjóðin því tækifæri til að hafna honum með því að neita að veita Alþingi umboð til að samþykkja þær stjórnarskrárbreytingar sem hann krefst,“ segir Eiríkur.

„Það er því ekki hægt að segja annað en ummæli Ólafs Ragnars um þetta séu mjög villandi svo að ekki sé sagt hrein blekking.“